Search found 2 matches
Til baka í “500 Metra mót Skotdeildar Keflavíkur”
- 12 Ágú 2015 00:53
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: 500 Metra mót Skotdeildar Keflavíkur
- Svör: 30
- Skoðanir: 9767
Re: 500 Metra mót Skotdeildar Keflavíkur
Nokkrar hugleiðingar frá mér en ég er mikill áhugamaður um svona mót. Alveg sammála Stefáni að banna target cam. Þær eru ekki orðnar það algengar að þeir fáu sem eiga þær hefðu mikið forskot í slæmu skyggni. Eins og Stefán sagði þá þarf góð skilyrði til að sjá 6 mm kúlugat á 500 metrum. Veit ekki alveg hvað skal segja um 338 cal. Fyrra 500m mótið hjá Skaust í fyrra, vannst með 338, þá var talsverður vindur og hefur kúluþyngdin þá hjálpað talsvert. Ekki vannst það á sérstakri lögun á afturskepti, þar sem allir máttu nota sandpoka og gerðu það. Og þá er komið að afturstuðningnum og rökunum fyrir því að banna hann í þessu móti. Mér finnst það skrítin rök að óhefðbundin skepti veiti mönnum forskot ef sandpúði er leyfður. Afturpúðarnir virka best með hefðbundnu skepti þar sem hægt er að stilla hæðina af með því að renna rifflinum fram eða aftur. Með aðferðinni sem vitnað er í að hafi verið notuð í Zeiss mótinu verður að passa vel uppá að eisn sé stillt fyrir alla. Veit um einn keppanda á síðasta Zeiss móti sem þurfti að lyfta skeptinu meira en hnefaþykktina til að miða á neðstu skífuna. Þá er verið að refsa mönnum fyrir að vera handsmáir. Sem sagt mín skoðun, frjáls afturstuðningur, geri ekki mikinn greinarmun á sandpoka eða monopod. Svo má alltaf rífast um tvífætur, tactical, sem hægt er að teygja langt fram og út til hliðanna eða bara Harris og Caldvell??? Nóg í bili, vona að allir skemmti sér vel á þessu móti. Flott framtak að halda þetta mót. Bíð spenntur eftir úrslitum.
- 10 Ágú 2015 11:21
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: 500 Metra mót Skotdeildar Keflavíkur
- Svör: 30
- Skoðanir: 9767
Re: 500 Metra mót Skotdeildar Keflavíkur
Flott að fleiri félög haldi þessi skemmtilegu mót. Ég hélt að það væru 9 borð í KEF. Af hverju skjóta þá bara 5 í einu?