Sæll nafni, ég hef reynslu af að notast við selshræ við ströndina, hann gekk ákveðið í það eftir að krummi var farinn að kroppa í hræið en það var greinilegt að refurinn sýndi því engan áhuga fyrr. Undanfarin ár hef ég skotið refi í uppsveitum Árnessýslu og víðar en gengið best að notast við hræ af hrossi.
Þegar ég byrjaði uppí sveitum hafði ég ekkert æti og tók því með mér nýskotinn sel til að nota sem agn en það gekk ekki upp þar.
Ég gat mér þess til að ástæðurnar væru helst þær að ég var með sel langt inní landi, þar sem kvorki hrafninn né tófan þekktu hann sem æti, eins var á þessum tíma frost og skafsnjór og hart selshræið ekki auðveldasta ætið fyrir krumma
Ég fláði selinn viku seinna svo krummi og rebbi fengju kannski áhuga á spikinu en það hafði ekkert að segja, ég fjarlægði svo hræið um leið og ég fékk hross og þá fóru hlutirnir að gerast.
Af fenginni reynslu myndi ég hiklaust notast við sel nálægt sjó.
Kv.
Þorsteinn B. Bjarnarson
Search found 1 match
- 02 Dec 2012 10:10
- Spjallborð: Vargur
- Umræða: Æti við skothús
- Svör: 4
- Skoðanir: 1439