Þetta er okkur veiðimönnum ekki til framdráttar og verður notað gegn okkur þegar einhver hagsmunamál koma upp. Allir veiðimenn verða að standa saman að bera virðingu fyrir náttúrunni og skilja ekki svona eftir eða skilja við hana á annan óviðeigandi hátt. Þetta er okkar hagsmunamál.Hirtu bara bringurnar
Hún var ófögur sjónin sem blasti við fólki sem var á ferð við Hálslón um síðustu helgi. Veiðimenn sem þar höfðu verið á ferð skildu mjög ósmekklega við, hirtu bringurnar og skildu gæsahræin eftir.
„Slík aðkoma er mjög ljót og ekki til að bæta mynd almennings af veiðimönnum og veiðum,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.
Af þessu gefna tilefni vill stofnunin minna veiðimenn á að ganga vel um auðlindina og stilla veiðum í hóf. Einnig eru veiðimenn hvattir til að nýta bráðina sem best.
Search found 1 match
Til baka í “Ekki okkur veiðimönnum til framdráttar...”
- 02 Sep 2010 08:00
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Ekki okkur veiðimönnum til framdráttar...
- Svör: 0
- Skoðanir: 761
Ekki okkur veiðimönnum til framdráttar...
Tekið af mbl.is