Sælir
Já það er óhætt að segja að breytt fyrirkomulag og breyttar reglur frá því veiðimönnum bauðst síðast til að sækja um viðileyfi á hreindýr hafi breytt nokkru.
Það er nokkuð ljóst að töluverður fjöldi sækir ekki um dýr af því að umsóknin kom ekki strax í framhaldi af skilum á veiðitölum og umsókn um veiðileyfi fyrir komandi ár.
Það sem mest fælir frá að ég held, er skotprófið. Gæti trúað að það svona 90%/10% skipting. Margir kolféllu á prófinu í fyrra og sumir ýtrekað. Aðrir þorðu ekki að sína hvað þeir gátu og vildu ekki fara í prófið, skiluðu því inn sínu leyfi. ( ég veit um 2 dæmi þess, og er þau eru örugglega miiikið fleiri.)
Einhverjir fóru ekki í prófið til að mótmæla því að það var sett á eftir að menn voru búnir að borga staðfestingargjaldið.
Kallar sem skutu einu skoti í 2ltr kókflösku á 100m helgina áður en þeir áttu að fara til veiða ( og ekkert annað á árinu) og feilskutu svo á dýrið sitt á 200m heyra nú vonandi sögunni til.
Ps. er samt ekki ánægður með skotprófið eins og það er í dag, ekki nógu vel staðið af því hvernig því var komið á. Hefði verið betra að fresta því um eitt ár og gefa öllum hagsmunaaðilum kost á því að segja álit sitt og komast að niðurstöðu sem svo væri endurskoðanleg að ári með tilliti til galla.