Sælir félagar
Jónas vísar í lög um meðferð og geymslu á byssum. Þörf ábending þar. Ef allir færu eftir þeim þá ættum við að vera í góðum málum. Ég geri samt ráð fyrir að reglan um byssuskápana hafi verið sett til að auðvelda eigendum að passa upp byssurnar og að erfiðara væri fyrir óviðkomandi að komast í þær.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Search found 3 matches
Til baka í “Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum”
- 28 Dec 2012 13:16
- Spjallborð: Skammbyssugreinar
- Umræða: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum
- Svör: 32
- Skoðanir: 9606
- 28 Dec 2012 08:09
- Spjallborð: Skammbyssugreinar
- Umræða: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum
- Svör: 32
- Skoðanir: 9606
Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum
Sælir félagar
Ég var að lesa greinina eftir borgarstjórann og verð að segja eins og er að ég er um margt sammála honum. Það hlýtur að mega gera e-r kröfur til þeirra sem fá byssuleyfi eins og t.d. að aðrir komist ekki í byssurnar. Við þekkjum dæmi á Íslandi að börn hafi valdið slysum með byssum. Ég held að fáir skilji t.d. afhverju þarf byssuskáp fyrir þrjár byssur en ekki tvær. Reynum að fá borgarstjórann í lið með okkur. Það væri kannski ráð að bjóða honum í Skotfélag Reykjavíkur ef hann er ekki þegar í því.

- 26 Dec 2012 14:52
- Spjallborð: Skammbyssugreinar
- Umræða: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum
- Svör: 32
- Skoðanir: 9606
Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum
Sælir félagar
Þetta er góð grein hjá Magnús og nauðsynlegt að þetta sjónarmið komist á framfæri. Ég hef gjarnan notað þau rök í þessari umræðu að það séu ekki byssur sem drepa, heldur fólk. Það er mikill menningarmunur á t.d. Íslandi og Sviss annarsvegar og Bandaríkjunum hinsvegar. Ég veit ekki hvort það sé hægt að segja að það þyki sjálfsagt skjóta þann sem abbast upp á þig í Bandaríkjunum en það er allavega mun algengara en annarstaðar. Á Íslandi og Sviss er alls engin hefð fyrir því að skjóta þá sem abbast upp á þig og verður vonandi þannig áfram. Þó svo byssueign myndi minnka þar um helming þá grunar mig að drápum með byssum fækkaði ekki í samræmi við það. Það væri eins og að banna háar blokkir til að reyna að koma í veg fyrir sjálsvíg. Ég held að það sé annað en byssur sem sé vandamálið þar. Það eru reyndar 350 millj manna í Bandaríkjunum svo því sé haldið til haga. Þetta er mín skoðun og alls ekki víst að aðrir séu sammála þessu. Ef ég heyrði sannfærandi rök fyrir öðru þá væri ég vís til að skipta um skoðun.