Ég aftur á móti hef sértaklega gaman af að mæla með öðru en Siggi vinur okkar gerir hér Stebbi
Það er nú þannig að ég er með veiðifréttir sjálfur til að fylla upp í þennan ágæta þráð.
Ég fór sjálfur á mánudaginn síðasta í góðum félagsskap að ná í minn fyrsta tarf í Sandvíkina til afa heitins Sveinbjörns.
Það var að sjálfsögðu ekki annað hægt en að taka fyrsta dýrið á heimaslóðum, þar sem afi minn var síðasti ábúandi í Sandvíkinni fögru.
Það má eiginlega segja að ég hafi farið á þessar slóðir líka til að sína vinum mínum Sandvíkina, þeim Kobba frá Grund eftirlitsmanni og Ísleifi.
Dýrið var fellt með 6BR og 100gr. Sierra Gameking á 2906fps. Alveg nákvæmlega þar sem á að hitta á 150m færi.
Kjötskemdir voru nánast engar þótt kúlan hafi strokist við rifbein í útgatinu, þar sem kúlan var einnig í feldinum ásamt hluta af blýkjarnanum.
Ég er ekki viss um að ég hefði viljað hafa meiri hraða á þessari kúlu þó mér hafi liðið hálf illa að legga af stað með þessa hleðsu ( eftir að hafa lesið allt bullið um 6mm og lítin hraða )
Við náðum hátt í 60 kg af kjöti úr þessum langa tarf sem var með 45mm bakfitu.
Ég hugsa að æfingin með vopnið sem á að nota skipti mestu þegar upp er staðið, ásamt auðvitað gæðum á hleðslu, kíki, vopni og festingum
Ég er ekki ennþá búinn að fá myndir frá snillingi frænda mínum Ísleifi, sem einnig á ættir að rekja til Sandvíkur og vildi endinlega koma með í þessa helför.
Ég á þó þessar 2 myndir af törfunum..
Þessi 98kg tarfur var feldur út á Gerpinum og dreginn nánast beint niður í Skála þar sem afi gerði út frá hér áður fyrr.
Search found 1 match
Til baka í “Veiði dagsins 2015”
- 17 Ágú 2015 00:13
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Veiði dagsins 2015
- Svör: 98
- Skoðanir: 33436