Sæll,
Það eru einhverjar aðferðir við það. ég er nú ekki sérfræðingur en er búinn að "ganga í gegnum" einn hund.
Ein aðferð er t.d. að láta einhvern skjóta af startbyssu töluvert langt í burtu meðan þú ert að gera æfingar með hundinum. Sá sem er að skjóta getur svo fært sig nær ef hundurinn er ekkert að kippa sér upp við kvellina.
Önnur aðferð er að byrja að skjóta úr hvellhettubyssu á meðan hundurinn er að éta.
Um að gera að tengja hvellina við eitthvað skemmtilegt, minn hundur verður t.d. alltaf mjög æstur þegar ég tek byssu út úr skápnum, þá veit hann að eitthað skemmtilegt er að fara að gerast.
Sem er annað en hundurinn í sveitinni gerir, hann skríður helst eins langt inn undir borð og hann getur inn í bæ, hann tengir byssur sennilega við eitthvað miður skemmtilegt.
Kveðja Guðmundur
Search found 1 match
Til baka í “Að venja við byssuna?”
- 06 Ágú 2013 08:30
- Spjallborð: Veiðihundar
- Umræða: Að venja við byssuna?
- Svör: 3
- Skoðanir: 3014