Þetta passar, búnaðarsambandið keypti riffillinn nýjan til refaveiða og mögulega hreindýraveiða. Pabbi og Einar skiptust á um riffilinn, en einhverju sinni þegar pabbi sótti hann í Melshorn var hlaupið ónýtt af ryði. Pabbi skipti þá um hlaup á honum og hefur riffillinn síðan verið á Fossárdal.asot skrifaði:Virkilega flottur riffill hjá þér Jón Magnús. Ég held að ég fari rétt með að þessi riffill hafi komið í Berufjörðinn um og fyrir 1960 þá kaupa búnaðarfélagið eða sveitarfélagið, pabbi þinn og Einar Gunnlaugsson hann, seinna eignast pabbi þinn hann allan, hef þetta eftir Braga Gunnlaugssini.
Pabbi kaupir svo nýjan sjónauka á hann 1995 þar sem honum fannst hann eitthvað ónákvæmur með þeim gamla. Síðan þá hefur riffillin sama og ekkert verið notaður og þegar gripið var í hann var árangurinn oftar en ekki takmarkaður. Þegar ég tók hann svo til handagangs í fyrra þá fór mig fljótlega að gruna hvers kyns var og eftir nokkrar prófanir sendi ég Arnfinni riffilinn og sé ekki eftir því.