Það eru gerðar kröfur til þeirra sem eiga 1-3 byssur sbr. 33gr. reglugerðar nr. 787/1998:Fiskimann skrifaði:Sælir félagar
Ég var að lesa greinina eftir borgarstjórann og verð að segja eins og er að ég er um margt sammála honum. Það hlýtur að mega gera e-r kröfur til þeirra sem fá byssuleyfi eins og t.d. að aðrir komist ekki í byssurnar. Við þekkjum dæmi á Íslandi að börn hafi valdið slysum með byssum. Ég held að fáir skilji t.d. afhverju þarf byssuskáp fyrir þrjár byssur en ekki tvær. Reynum að fá borgarstjórann í lið með okkur. Það væri kannski ráð að bjóða honum í Skotfélag Reykjavíkur ef hann er ekki þegar í því.
Kv. Guðmundur Friðriksson
33. gr.
Meðferð og vörslur.
Eigendur eða umráðahafar skotvopna og skotfæra skulu ábyrgjast vörslur þeirra og sjá svo um, að óviðkomandi nái ekki til þeirra. Í því skyni skal húsnæði sem geymir skotvopn og skotfæri ávallt læst ef íbúar eru fjarverandi. Við lengri fjarveru skal auk þess sem að framan greinir gera skotvopn óvirkt t.d. með því að fjarlægja af því nauðsynlega hluta aðra en láshús.
Þegar skotvopn og skotfæri eru ekki í notkun skulu skotvopn og skotfæri geymd í aðskildum, læstum hirslum.