Sæll Þorvaldur.
Þú getur tekið skotprófið allt árið.
Ég veit til þess að menn hafa fengið undanþágu frá tímamörkunum vegna sérstakra aðstæðna.
Það er svo kannski öruggast fyrir þá sem treysta riffli sínum ekki vel, nú eða eru valtir á fótunum, að taka prófið á tvo, eða þrjá riffla en heimilt er að taka prófið þrisvar.
Svo er bara að arka með vopnabúrið á fjöll.
JAK
Search found 5 matches
Til baka í “Riffilcaliber, þróun milli ára.”
- 13 Oct 2016 20:44
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7250
- 13 Oct 2016 09:17
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7250
Re: Riffilcaliber, þróun milli ára.
Sæll Þorvaldur frá Hróarsdal.
Þakka þér fyrir traustið sem þú virðist bera til mín en reyndar er ég ekki sérfræðingur á þessu sviði.
Ég myndi þó telja að atburðarrásin ætti að vera eins og þú lýsir.
Reglur eru jú reglur og til hvers eru þær ef þeim er ekki fylgt.
Allt getur gerst, riffill bilað eða veiðimaður misst hann og skemmt en mikilvægast í þessu tel ég vera að veiðimaður þekki verkfæri sitt vel og hafi æft sig vel í notkun þess.
Og til að forðast slíkar uppákomur er þá kannski mikilvægt að velja vandað verfæri og láta jafnvel byssusmið yfirfara gripinn áður en haldið er til heiða.
Í huga minn kemur upp setning úr gamalli auglýsingu frá Rolls Royce
"Allir bílar bila, en góðir bílar bila sjaldan."

- 10 Oct 2016 23:35
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7250
Re: Riffilcaliber, þróun milli ára.
Sæll Sigurður.
Þetta er ekki rétt hjá þér. Riffillinn er Blaser R8. Hann er þannig uppbyggður að það er enginn lás á honum, eins og á hefðbundnum boltariffli. Boltinn gengur inn í hlaupið og læsist í það með hringlæsingu. Því er ekkert númer á lásnum sem er ekki til staðar. Númerið er á hlaupinu og engin tvö hlaup eru með sama númerinu. Þegar annað hlaup er komið í skeftið er riffillinn orðinn annar riffill jafnvel þó svo að bæði hlaupin séu í sama kaliberinu.
Venjulegur boltariffill er með einstaklingsnúmerið á boltanum. Ef sett er skiftihlaup á slíkan riffil eru þrjár öftustu tölur einstaklingsnúmerins stansaðar í hlaupið. Ef skiftihlaupið er sama kaliber og upprunalega hlaupið má e.t.v. halda því fram að um sama riffil sé að ræða. Ef skift er um kaliber ertu í raun kominn með annan riffil með aðra eiginleika en veiðimaður þarf að taka skotpróf með þeim riffli sem hann hyggst veiða með eða eins og segir í reglunum um skotprófin:
"Áður en prófið er tekið á staðnum þarftu að:
Framvísa persónuskilríkjum (vegabréf eða ökuskírteini) og kvittun fyrir greiðslu prófgjalds.
Sýna prófdómara riffilinn ásamt skotvopnaskírteini. Einnig þarf að sýna skotfærin sem ætlunin er að nota. Ef ætlunin er að nota hjálpartæki (bakpoka, ól, staf eða tvífót) þarf að sýna prófdómaranum hvað í því felst. Riffillinn og skotfærin þurfa að uppfylla skilyrði til hreindýraveiða hvað varðar kúlugerð og slagkraft og þú mátt eingöngu mæta í prófið með þann riffil sem þú hyggst fara með á hreindýraveiðar."

- 10 Oct 2016 08:16
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7250
Re: Riffilcaliber, þróun milli ára.
Sæll Sindri
Heldur þykir mér ólíklegt að menn séu að fara með annan riffil til veiða en þeir tóku prófið á. Til hvers í ósköpunum ættu þeir að gera það? Líklega yrðu slíkir menn í slæmum málum ef þeir mættu síðan nafna mínum á veiðislóð.
Ég er með nóvemberkú og þurfti eðli málsins að taka skotpróf fyrir 1. júlí sem ég og gerði. Notaði ég riffil í cal 6.5x55 til þess. Nú er ég búinn að fá annað hlaup á riffilinn í 30 06 sem alltaf stóð til að nota á veiðarnar.
Ég er að fínstilla hleðslurnar þessa dagana, (það hefur þó tafist vegna yfirferðarinnar á logninu í Höfnum) en að því loknu mun ég taka annað skotpróf.
Ég sé um að skrá inn hjá UST niðurstöður skotprófa sem skotprófsdómarar Skotíþróttafélags Kópavogs sjá um að taka. Sé litið á kúlurnar sem próftakendur eru að nota finnst mér mjög ólíklegt að menn séu að skifta um kúlur þegar á veiðislóð er komið.

- 09 Oct 2016 09:34
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Riffilcaliber, þróun milli ára.
- Svör: 19
- Skoðanir: 7250
Re: Riffilcaliber, þróun milli ára.
Sælir félagar.
Það bæri fróðlegt að sjá svona samantekt frá UST.
Þar sem upplýsingar frá öllum veiðimönnum, um caliber og kúlur, væru teknar saman?
Áskorun til þín Jóhann Guttormsson.