Sælir félagar,
Vildi bara benda þeim sem ekki vissu af að á fimmtudag verður Benelli mót á æfingarsvæði Skotreyn á Álfsnesi.
Mótið hefst stundvíslega kl 12:00 og verða skotnar 75 dúfur.
Þetta er fyrra mót af tveimur þar sem samanlagður árangur ræður úrslitum, það er því um að gera að mæta og skemmta sér.
Á svæðinu verða tvær Vinci byssur til afnota fyrir þá sem ekki eru með Benelli, en eingöngu er leyft að nota Benelli haglabyssur í mótinu.
Sjáum vonandi sem flesta á svæðinu.
Kveðja
Kjartan Lorange
Veiðihúsið Sakka ehf
Search found 1 match
Til baka í “Benelli mót á fimmtudag.”
- 07 May 2013 14:49
- Spjallborð: Haglabyssugreinar
- Umræða: Benelli mót á fimmtudag.
- Svör: 0
- Skoðanir: 3220