Ég var að fá jólakveðju frá góðri vinkonu minni í Pólandi, pabbi hennar Vitek Koss mikill vinur minn hefur boðið mér að koma til sín í Pólandi til að veiða ég er búinn að fara einu sinni og veiða með þeim rauðhjört og villisvín og er á leiðinni einhverntíman í fyllingu tímans aftur til þeirra.
Vitek hefur komið og veitt hjá mér hreindýr 2008 og Agata fékk úthlutað af biðlistanum síðasta haust og var búin að plana ferð til mín en varð að hætta við á síðustu stundu vegna anna við próf í háskólanum sínum. Ég hef sótt um fyrir Vitek alltaf síðan hann kom en hann hefur ekki fengið úthlutað og ekki Agata heldur eftir að hún fékk byssuleyfi fyrir tveimur árum.
Agata dóttir hans er hér með villisvín sem hún skaut að kvöldi 16. desember síðastliðinn. Henni er ekki fisjað saman konunni þeirri arna, myndaleg villisvín sem hún fékk, sennilega skotin með 8x65 Sauer riffli.
Search found 2 matches
- 24 Dec 2012 09:26
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Gleðileg jól!
- Svör: 20
- Skoðanir: 4688
- 21 Dec 2012 14:02
- Spjallborð: Allt um veiði
- Umræða: Gleðileg jól!
- Svör: 20
- Skoðanir: 4688
Gleðileg jól!
Ég óska ykkur öllum innilega gleðilegra jóla og góðs nýs árs.
Þakka fyrir öll skemmtilegu skoðanaskiptin hérna á spjallinu.
Það hefur verið mér ómetanleg uppspretta allskonar fróðleiks.
Þakka fyrir öll skemmtilegu skoðanaskiptin hérna á spjallinu.
Það hefur verið mér ómetanleg uppspretta allskonar fróðleiks.