Það er búið að aðskilja klárt og kvitt að skila veiðiskýrslunni og það að sækja um hreindýraveiðileyfi.
Það var timi til kominn, mér finnst þetta til mikilla bóta og það fækkar umsóknum klárlega.
Gamla kerfið var meingallað, menn komust vart út af skilavefnum nema sækja um hreindyraveiðileyfi og ég veit mörg dæmi þess að menn sem ekki ætluðu að sækja um veiðileifi þegar þeir fóru að skila veiðiskýrslunni en slógu svo til þegar þeir komust ekki út aftur með góðu móti nema sækja um leyfi og sátu svo uppi með allan pakkan þegar þeir fengu úthlutað og tímdu þá ekki að skila leyfinu.
Sumir sögðu að þetta væri eins og að lenda inni á klámsíðu, það væri oft nánast ógerningur að komast út af þeim nema kaldræsa tölvuna
Ég þeit ekkert um sannleksgildi þessa vegna þess að ég þekki ekki muninn, ég hef aldrei sótt um hreindýraveiðileyfi síðan ég varð leiðsögumaður
Search found 1 match
Til baka í “Hreindýraleyfin og skilavefurinn”
- 24 Jan 2013 20:36
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
- Svör: 29
- Skoðanir: 3667