Karl Guðna spurði þig hvort þú hefðir þurft að vera með leiðsögumann.
Það er satt sem þú segir Gísli það er mikill munur á aðstæðum, þarna er verið að veiða á afmörkuðu eignarlandi úr kvóta sem þeim er úthlutað, kvóta sem er fyrirfram samsettur af törfum kúm og kálfum.
Þú talar mikið um stjórnandann sem réði öllu þarna, hann er vissulega ígildi leiðsögumanns, það er mikið útbreiddur misskilningur hér á landi að menn meigi veiða svo og svo mikið erlendis án leiðsögumanns, fylgdarmennirnir heita kannski ekki leiðsögumenn eða eftirlitsmenn en reglurnar sem menn gangast undir þarna úti eru kannski eru oft harðari en hér á Íslandi, það er allavega mín reynsla frá veiðum erlendis, til dæmis í Pólandi.
Í þessu tilfelli er verið að veiða úr kvóta sem úthlutað er á tiltekið land og sumsstaðar hafa menn ákveðna skyldu til að ná þessum kvóta, að öðrum kosti er hann veiddur á kostnað landeigendanna, ég veit að vísu ekki hvernig það er þarna akkúrat, veit þó að það er svoleiðis á ákveðnum svæðum á Bretlandi og Skotlandi.
Eini munurinn á þessu í praktík sýnist mér vera að þarna þurfa menn ekki að borga leiðsögumanninum sem er þú svo sannalega fyrir hendi í þessum stjórnanda sem þú nefnir Gísli.
Search found 2 matches
Til baka í “Noregur - veiðisaga frá haustinu 2013”
- 12 Mar 2014 10:04
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Noregur - veiðisaga frá haustinu 2013
- Svör: 34
- Skoðanir: 8846
- 11 Mar 2014 07:39
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Noregur - veiðisaga frá haustinu 2013
- Svör: 34
- Skoðanir: 8846
Re: Noregur - veiðisaga frá haustinu 2013
Takk fyrir þessa frásögn, kærlega og flottar myndir
Ég er líka stoltur, trúi því að þú einn hafir veitt vegna þess hvað þú lærðir mikið af því að fara með mér á hreindýraveiðar
Ég er líka stoltur, trúi því að þú einn hafir veitt vegna þess hvað þú lærðir mikið af því að fara með mér á hreindýraveiðar