Nei, nei, þessi umræða er alltaf í gangi
Við erum jú, alltaf að kaupa okkur dót, sem betur fer
Search found 14 matches
Til baka í “Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?”
- 30 Nov 2015 12:29
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
- 30 Nov 2015 12:13
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Hvað er nú í gangi hérna ??
Þessi þráður var ekki stofnaður til að menn ættu að rífa niður, það sem menn eru að segja hér frá, að hafa keypt sér byssu og veiðitengt.
Menn verða nú að fá að ráða hvað menn kaupa og þurfa og vilja nota.
Það skiptir engu hvar dótið okkar er framleitt og keypt ef við á annað borð erum stoltir og ánægðir með það, en séum við erum að kaupa lélegt dót, kemur það ekki niður á neinum nema okkur sjálfum, við höfum einfaldlega þetta val.
Við eigum að vera jákvæðir og gleðjast með þegar einhver kaupir eitthvað og deilir með okkur stoltur og ánægður með notagildið.
Jú, jú, við getum gert góðlátlegt grín ef við erum góðir í fimm aura bröndurunum
Dótið verður ekki betra eða verra þó einhverjir tali um það hér, af heilagri vandlætingu og vitni vandlætingunni til stuðnings, í lög og reglur þar lútandi, alveg frá Grágás þess vegna, sem enn mun að einhverju leiti í gildi, sérstaklega hvað landnytjar og veiðar varðar.
Hafi Þorvaldur í Hróarsdal keypt sér ódýran sjónakua sem kemur vel út, er það hið bezta mál, það eru nefninlega margir sem vilja kaupa sér ódýran sjónauka og hið bezta mál að fá fréttir af því, svo þeir sem hafa áhuga á því geti verzlað sér í því sama .
Já Þorvaldur til hamingju með græjuna
Þeir sem vilja bara kaupa sér dýrari sjónauka, það er líka hið bezta mál og ekki erum við hinir neitt að tala það niður, skrítið, það væri miklu eðlilegra að öfundin næði í þá átt, nei það eru allir glaðir með það og ég sé ekki alveg muninn.
Meðan ég man, var ekki einhver að tala um geðrannsókn hérna inni

- 03 Mar 2015 07:18
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Flottur Jens til hamingju, þá getur þú kannski farið að nota 308una til veiða af einhhverju viti, hún notast illa við það nema með fjarlægðarmæli að mínu viti, mannstu
Jón, er ekki hlaupið á gamla Carl Gustaf snittað orginal? Flottur riffill eftir þessa upplyftingu

- 26 Feb 2015 15:36
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég hef nú ekkert verið að kaupa mér nýlega en þetta áskotnaðist mér á dögunum eftir umsóknarferli.
- 23 Oct 2014 07:47
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þú þarft að hafa leyfi fyrir byssunni sem þau passa í.
Kannski á að framvísa þeim ég veit það ekki og gerði það ekki.

- 21 Oct 2014 23:21
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Nei það var ekkert mál að kaupa skotin, afgreiðslumaðurinn vildi endilega selja mér slögg í 410 sem voru með eina slögg kúlu, svona með plastoddi einhverskonar og tveimur stórum bucks stálhöglum sem fylltu nánast út í þvermál patrónunnar.
Þegar ég spurði, hvað í ósköpunum menn notuð slíkt og þvílíkt, sagði hann hróðugur, þau eru notuð til að verja híbýli okkar og bætti við eftir örlitla þögn, þau eru góð þau stoppa óboðna gesti algerlega.
En ég keypti þau ekki, ég þurfti ekkert að nota þau, enda lítið um óboðna gesti hjá mér.
Það er ekkert mál að koma þessu inn í landið ég má koma með allt að 100 skot með mér til landsins.

- 21 Oct 2014 20:39
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Talandi um að hafa verið að kaupa sér eitthvað dót
Ég hef bara alveg gleymt mér í að dissa menn hérna útaf 308
Ég er eins og fram hefur komið nýkominn úr Ameríkuhreppi og fór nattlega í Cabelas í Mineappolis.
Hér kemur mynd af smá sýnishorni þaðan, hlíf á stýrið í Landcrusernum, tappi upp í prófíltengið framan á sama bíl þetta að sjálfsögðu merkt Cabelas.
Síðan fengu að fljóta með nokkur skot í 410, slug og 3" það er ekki til mikið úrval af svona hérna heima.
Síðan keypti ég mér bömms af fötum, buxum skirtum, náttbuxur og kvöldpeysa flutu með, fóðruð flíspeysa og úlpa, ýmsu smálegu sem ekki tekur að nefna nér birta myndir af það telst bara til daglegra þarfa hjá mér

- 14 Oct 2014 20:53
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Já Jón ég var nokk viss um að það var sjónaukinn sem þú varst að ásælast.....ennn....riffilgarmurinn getur vel nýst þér í dramtiðinni til markskytterís, ég hef aldrei mótmælt að svona verkfæri eru fín til þess brúks.
Þú mannst kannski eftir því að þú tókst fyrir mig Zeiss Counquest sjónaukann fyrir mig fyrir sunnan og komst með hann austur, ég hefði sennilega keypt riffilinn undir honum líka, (Savage Palma cal. 308) ef ég hefði ekki fengið hann öðruvísi, en ég slapp við það blessunarlega þar sem sjónaukinn var falur sér.
Ég hefði að vísu losað mig strax við hann, það hefði sennilega ekki verið vandamál, það eru allir að hæla þessum græjum svo svakalega hérna
Stebbi min......auðvitað eru öll dýrin í skóginum vinir, auðvitað erum við vinir líka.....allavega lít ég svo á, ég vona að þú geri það líka....þrátt fyrir smá hártoganir, en það er nú bara minn stíll og mér finnst enn skemmtilegra þegar það ber þann árangur að menn verða hörundsárir og fara að velta sér upp úr allskonar afsökunum
Já að sjálfsögðu er það minn háttur að lesa öll koment hérna með mínum gleraugum og ég nota alltaf sömu gleraugun
Svo ég fari aðeins yfir þetta þá finnst mér allt í lagi að menn noti 308 í markskotfimi ef þeir á annað borð kjósa það, það hefur líka komið fram, að það er og verður ekki mitt val alla jafna, þó það hafi komið fyrir.
Það er líka allt í lagi þó ég telji það fráleitt besta kostinn að skjóta hreindýr með þessu kaliberi en veiðmenn hafa jú oftast allan heimsins tíma til að skjóta sitt hreindýr ef þeir hafa á annað borð nothæfan leiðsögumann, sem mælir fjarlægðina og gefur nógan tíma til að klikka sjónaukann til, en mér finnst það samt vera óþarfa tímaeyðsla (mér finnst nú líka óþarfa tímaeyðsla að raka mig á hreindýraveiðitímanum).
En fyrir sómakæran hreindýraleiðsögumann fynnst mér ómögulegt að nota þannig vopn, málið er nefninlega að ef ég þarf á annað borð að hleypa af skoti á hreindýr á veiðitímanum er það æfinlega á sært hreindýr eftir oftast, mikil hlaup og æfinlega á löngu færi, þá hef ég tímann mjög af skornum skammti til að fella dýrið og þá gildir það eitt að gerta skotið fljótt án neinnar umhugsunar, ég hef kallað það að, skjóta fyrst og hugsa svo!
Þess vegna skil ég það mæta vel þegar Jón Magnús segir ,,þessi riffill fer nú sennilega aldrei á hreindýraveiðar aftur".
Ég hefði hugsað svipað

- 12 Oct 2014 22:33
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jææææja Stebbi minn, bara alltaf í boltanum, á nú að bakka út úr öllu saman þú finnur riffilgarminum allt til foráttu og vilt breyta honum svona og svona mikð og klikkir svo út með því að segja að eftir svo og svo miklar breytingar mundir þú ekki einu sinni velja þetta apparat sem fyrsta kost.
Sveiattan, hér hafa menn nú reynt að standa og falla með því sem þeir segja, en reka ekki í bakkgírinn með skottið undir bíl, skott sem nær alveg fram að framhásingu, og vilja ekki kannast við neitt

- 12 Oct 2014 22:12
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Jæja Jón minn, ég skil, menn hafa lent í ýmsu hérna.
Nú hefur þú að vísu lent óvenju illa í því, enn, fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, þú getur altént notað af honum sjónaukann !!!!
Ég ætla nú samt að vona að þú hafir ekki þurft að gefa augun úr, fyrir þetta apparat
Annað en sjónaukinn virðist þurfa svo mikillar lagfæringar við, að mati Stebba Snipers, að það svarar nú vart kostnaði að fara að krukka í það, alle samen.
Tuttugu og fimman verður fín með þennan sjónauka, með mil dot krossi og alles, þú getur allavega mætt mér á jafnréttisgrunni i Hreindýrahreystinni næsta sumar

- 01 May 2014 00:26
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Ég vissi nú að þið Þingeyingar eru góðir með ykkur, en ég vissi ekki að þið hefðuð sérslegna krónupeninga norður þar, ja......nema krónupeningarnir ykkar séu líka svona loftfylltir......?......
Takk æðislega Gylfi minn fyrir liðlegheitin og hjálpina, þið Þingeyingar eruð höfðingjar heim að sækja og bóngóðir með afbrigðum, það verður aldrei af ykkur tekið

- 01 May 2014 00:18
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Svo komst ég í skápana hjá séra nafna, honum Gunson okkar hérna!
Það er greinilegt að honum verður seint varnað aðgangs þarna í ,,uppheimum" eins og hann er vel vopnum búinn.
En miðað við skotfærin í skápnum gæti hann Lykla Pétur orðið dálítið snúinn og kannski ekki mjög hræddur, ef hann er ekki að væflast þarna í hliðinu berfættur, ja.....svona ef hann hefur eitthvað vit á byssum og skotfærum

- 01 May 2014 00:01
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Þá er Zeiss Conquest 6,5-20x50 sjónaukinn kominn á 6,5-284 riffilinn hjá mér, og riffillinn kominn frá Gylfa vini mínum Sig og er eins og nýhreinsaður hundur.
Gylfi prufaði hann eftir þrifabaðið með massa, skóp og alles......og varð alveg standandi bit hvað hann setti vel með þessar léttu kúlur 95 gr. V-Max á 3400 fetum þegar hann prufaði hann á eftir. Fimm skot sem öll komust fyrir ,,undir krónupeningi" sagði höfðinginn, þegar hann mátti mæla
Nú er bara að stilla hann inn, ég sagði við séra nafna sem bauð mér að koma með sér á laugardagsmorguninn að skjóta í mark að ég ætti bara 4 skot til að stilla hann, en mér dygðu 3 sagði ég rogginn, svo nú verð ég bara að standa við stóru orðin

- 17 Mar 2014 16:24
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
- Svör: 215
- Skoðanir: 45657
Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Mér datt til hugar að starta þræði sem við getum montað okkur af nýjum græjum, byssum og tilheyrandi.
Ég var að fjárfesta í nýjum sjónauka á riffilinn hjá mér, niðurstaðan var Zeiss Conquest 6,5-20x50 silver með hunting turrets, mil dot krossi og áfestum hallamæli.
Fékk hann örlítið notaðan á góðu verði og nú verður 30 ára gamla góða Taskoinum sem ég keypti af Árna Loga forðum, skipt út og hann geymdur til vara í skápnum.