Já það er margt skrítið í kýrhausnum, ég sá viðtal við Ólaf í Mogganum að mig minnir þar sem hann þakkar fjölgunina friðun undanfarið!
Ég var í sumarbústað á Úlfsstöðum á Völlum fyrir hálfum mánuði óg þá komst ég ekki hjá því að taka þátt í karratalningunni, taldi strax einn.......hann stóð vörð löngum stundum á mæni sumarhússins sem við vorum í og fylgdist með okkur í heita pottinum.
Ég hef séð óvenju mikið af körrum þetta vorið svo ég held að útkoman verði góð þetta árið, en rjúpu gefur verið að fjölga að því mér finnst hérna fyrir austan síðustu árin.
Einn karra sá ég líka sem hafði lent fyrir bíl við Kollstaðagerði skammt fyrir innan Egilsstaði sömu helgi.
Ég vona samt að það komi ekki að sök fyrir framgang rjúpnastofnsins austur hér!
Search found 1 match
Til baka í “Karratalningar koma vel út.”
- 14 Jun 2014 09:37
- Spjallborð: Fuglar
- Umræða: Karratalningar koma vel út.
- Svör: 6
- Skoðanir: 4031