Kúlan sem ég keppti með er rangt skráð í Exelskjalinu, ég var ekki með Nosler ballistic tip
Aðrar upplýsingar í skjalinu tengdar mér og mínum riffli eru hinsvegar réttar
Kúlan sem ég notaði er Hornady A-Max 100 gr. og hleðslan á bakvið hana er 60 gr. af Norma MRP púðri.
Ég er búinn að skipta úr Vihtavuori N-560 mér fannst það sóta og karbóna riffilinn um of og skipti þessvegna yfir í Norma MRP en held sama hleðslumagni, hef ekki enn mælt hraðann á þessari hleðslu, en 60 gr. af Vihtavuori N-560 á bakvið 100 gr. Nosler ballistic tip gaf 3500 feta hraða og 3400 fet á 95 gr. Hornady V-Max.
Það er vafalaust svipaður hraði á þessari hleðslu kannski kring um 3400-3500 fet
Search found 3 matches
Til baka í “SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí”
- 11 Jul 2014 22:42
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí
- Svör: 19
- Skoðanir: 2534
- 11 Jul 2014 21:31
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí
- Svör: 19
- Skoðanir: 2534
Re: SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí
Sammála síðasta ræðumanni
Áfram Finnur
Áfram Finnur
- 11 Jul 2014 18:29
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí
- Svör: 19
- Skoðanir: 2534
Re: SkAUST - Hreinn 2014 - 10. júlí
Ég er sáttur, var að fá það út úr mótinu nákvæmlega það sem ég vildi helst, með diggri aðstoð Ívars Karls frænda míns.
Hann fór með mig í gegn um ferilreikning til að kenna mér á mil dot sístemið, það er tiltölulega einfalt þegar buið er að sýna mér og græja það með mér, það voru öll skot nema 400 metrarnir dauðaskot hjá mér og ég er ánægður með það, veit ekki hvaða mistök ég gerði á 400 metrunum, en, ég gerði einhver mistök þar sem ég átta mig ekki á og var alger óþarfi eftir uppleggið hjá Ívari Kari með mér.
Skotin voru öll aðeins yfir á lengri færunum sem er betra en hafa þá of neðarlega, þau drepa allavega betur ef þau koma ofar og skemma minna.
Þetta var bara eins og leiðsögumaður og veiðimaður (Ívar Karl leiðsögumaðurinn) hann stóð hjá mér og sagði mér til jafn óðum.
En það var einmitt ætlunin með að kaupa þetta gler að nota mil dot-ið, sjónaukinn er með hunting turret turnum, svo það er ekki um það að ræða að klikka hann upp og niður eftir færunum.
Kirfilega skrúfaðir tappar á turnunum, enda mundi það enda með ósköpum hjá mér ef ég notaði klikkdæmið á veiðum mundi fljótt ruglast á því hvar ég væri staddur í klikkunum og þá er verra af stað farið en heima setið.
Sem sagt ég er ánægður og ætla að leggja glaður að vanda í hreindýravertíðina þetta áið sem endranær, meira að segja örlitið glaðari!
Set hérna inn úrslit mótsins í exel, það er hægt að þekkja hjartaskotin úr á því að þau gefa 7 stig.
Jón, þú værir kannski vís til að setja inn mynd af skífunni sem hékk uppi og sýnir stigagjöfina.