Search found 2 matches
Til baka í “Riffilbraut hafnað í annað sinn”
- 20 Jan 2015 12:09
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: Riffilbraut hafnað í annað sinn
- Svör: 17
- Skoðanir: 2815
Re: Riffilbraut hafnað í annað sinn
Draugagil.....það er æðislegt nafn fyrir skotsvæði
- 16 Jan 2015 23:43
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: Riffilbraut hafnað í annað sinn
- Svör: 17
- Skoðanir: 2815
Re: Riffilbraut hafnað í annað sinn
Félagi og vinur, Þorsteinn.
Það er sorglegt hvað mörg sveitarfélög í landinu reyna að þvælast fyrr þegar skotfélög sækja um leyfi fyrir skotsvæðum.
Þetta er nú einu sinni vinsæl íþrótt, en það vill gleymast!
Sérsvið og þjónustulund sveitarfélaganna virðist miklu frekar ganga út á að rukka
Allar athugasemdir hvað þessi skotsvæði varðar eru oft teknar til greina, hvort sem eitthvert vit er í þeim eða ekki, það virðist því miður allstaðar vaða uppi í þjóðfélaginu vanþekking á skotvopnum og eiginleikum þeirra.
Þetta virðist ekkert vera skárra hjá kjörnum fulltrúum okkar.
Í krafti vanþekkingar og hræðslu við hana hjá þessum kjörnu fulltrúum og vanþekkinguna hjá almenningi, sem notar hana til að gera athugasemdir við allt smátt og stórt sem viðkemur skotsvæðum, eru hinir kjörnu fulltrúar oft það huglausir að þeir þora ekki að taka afstöðu til málanna og grípa fegins hendi öll tækifæri til að fresta málunum, af tæknilegum ástæðum.
Þetta verður því miður oft til þess að þessi mál eru að þvælast í kerfinu hjá sveitarfélögum árum saman algerlega að óþörfu.
Við þekkjum þetta vel hérna hjá SKAUST, eftir að leigusamningurinn um land undir skotsvæði á Þrándarstöðum rann út og ákveðið var að flytja sig þaðan, var þetta mál að þvælast fram og aftur í kerfinu hérna í fjölda ára og búið að minnsta kosti að fá vilyrði fyrir fleiri en einum stað hjá landeigendum, gekk það til baka vegna einhverra nágranna til dæmis sem gerðu athugasemdir og fleira.
Síðan þegar búið var að úthluta svæðinu á Þuríðarstöðum á Eyvindardal, var það ekki á beinu brautinni til að byrja með, en þá sýndi sveitarstjórnin að vísu hugrekki og tók af skarið, þó síðan hafi verið erfitt að sækja ýmsar sjálfsagðar úrbætur tengdar svæðinu, svo sem þokkalega færan veg að aðstöðunni og brú yfir ána, þar eru yfirvöld í einhverjum tæknilegum þrautakóng, sem tefur fyrir málunum.
En það virðist bara fara einhver histería í gang þegar rætt er um skotvopn, alveg sama hvað er í þeim efnum.
Er þá skemmst að minnast umræðu um byssur þær sem Landhelgisgæslan fékk frá Noregi og lögreglan átti að fá afnot af en umræðan varð til þess að nú á að skila þeim og skilja lögregluna eftir á flæðiskeri í þeim efnum, með ónothæf vopn, þegar reynslan úti í heimi segir okkur að nú sé nauðsin sem aldrei fyrr að lögreglan verði girt í brók í þesssum efnuum