Ég held að þessi skotafjöldi sé svona nálægt norminu í þessari rekstrarveiði!
Ég hef tekið þátt í svona veiði og það er mikið skotið svo er víst.
Mig minnir að skotafjöldinn þá hafi verið sviipaður og þessi, það var verið að halda honum saman man ég.
Þegar dýrin koma út úr skóginum eru þau oftast á mikilli ferð og þess vagna þarf að leiða ens og þú sagðir Þorsteinn, og ef skotið hittir, sést ekki endilega hvort það hittir ef þetta er bóg eða lungna skot, dýrið hleypur jafnhratt áfram þess vegna er venjulega sett allt úr magasíninu á dýrið eða eins mörg skot og hægt er að koma á það meðan það er að hlaupa fram hjá skyttunni.
Hins vegar ef skot hitttir í haus, háls eða hrygg kútveltist það um og óþarfi að skjóta meira i það skiptið.
Þegar ég var á þessum veiðum úti í Pólandi, skaut vinur minn á lítið villisvín með 3006 og 180 gr. kúlu ef ég man rétt, hann skaut á það 3 skotum sem öll fóru gegn um lungu og svínið hljóp áfram og ekkert hefði í skotist, hægði nær ekkert á sér inn í skoginn hinumegin við auða svæðið sem það kom út á, út úr skóginum og það þurfti hunda til að finna það, það hefur hlaupið um 130 metra eftir að það fékk fyrasta skotið í sig.
Svo það verður að segjast eins og er að venjan er að í þessari veiði er mikið skotið.
Ég þekki það líka að þegar erlendir menn koma til mín á hreindýraveiðar, vilja þeir gjarnan skjóta meðan dýrið er á einhverri hreyfingu og nær ómögulegt að fá þá til að hætta, eða í fyrsta lagi þegar magasiinið er tómt en dýrið fyrir löngu búið að fá sitt banaskot....já sinn er siðurinn í landi hverju
Search found 1 match
- 18 Jan 2015 10:06
- Spjallborð: Veiðar erlendis
- Umræða: Rekstrarveiði
- Svör: 7
- Skoðanir: 8964