Search found 6 matches
Til baka í “Á hreindýraveiðum”
- 03 Sep 2012 15:36
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Re: Á hreindýraveiðum
Ánægður en nokkuð þreyttur leiðsögumaður í lok veiðidags með hluta af feng dagsins ásamtveiðrifflum.
- 03 Sep 2012 15:31
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Re: Á hreindýraveiðum
Fimm glaðbeittir hreindýraleiðsögumenn hittust á öldunni austan við Hálsamýrina í Jökuldalsheiðinni tilbúnir að veiða tarfa ú hjörðinni utan úr Smjörfjöllum sem komin var þarna inneftir.
Aðalsteinn Aðalsteinsson var fjarri góðu gamni þar sem hann var kominn með veiðimann á rölt (6 km) á eftir hópnum.

- 26 Ágú 2012 02:19
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Re: Á hreindýraveiðum
Að vera á hreindýraveiðum eða vera ekki á hreindýraveiðum það er spurningin.
Það er margt mannanna bölið úr höfuðborg óttans, hundrað og einn Reykjavík, sem berst með veiðimönnum austur hér.
Nokkrir ungir menn keyptu sér veiðbíl sem átti að notast eingöngu til veiða sem er að sjálfsögðu hið allra besta mál og er svo sem ekki í frásögu færandi.
Liðu nú stundir fram og farið var á græjunni á hreindýraveiðar í austurveg, hreindýr féll og var dregið niður á slóð í veg fyrir nýja veiðibílinn.
Þar sem bíllinn og dýrið voru þarna komin hlið við hlið og ekkert eftir nema snara dýrinu inn í nýja veiðibílinn sem sérstaklega var keyptur til að flytja þessháttar.
Bar nú nýrra við, nýji veiðibíllinn allt í einu orðin alltof flottur fyrir þessa veiðibráð, að vísu verður að viðurkennast að örfáir dropar blóðs drupu úr nösum dýrsins og ekki viðlit að setja það í bílinn kannski vegna þess einmitt.
Var nú hringt á leigubíl sem að vísu var í öðrum verkum og kallaður til um 11 kílómetra leið að meiri parti eftir hálfgerðri vegleysu og kerru framan úr sveit sem sótt var 20 kílómetra til að bjarga nýja veiðibílnum frá þessum rauðgrana.

- 18 Ágú 2012 23:02
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Re: Á hreindýraveiðum
Lang flottastur Þórarinn, þetta er skemmtileg frásögn og myndefnið frábært. Takk fyrir þetta
- 06 Ágú 2012 14:02
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Re: Á hreindýraveiðum
Til hamingju með þennan tarf nafni, glæsileg veiði, flottur tarfur, 80-90 kíló er góð þyngd á tarfi skotnum um miðjan júlí, hann hefði farið vel yfir 100 kíló í lok veiðitíma en ekki bætt við sig neinu nema fitu.
Þessi á eftir að bragðast vel.
Flott að sjá aðstæðurnar á neðri myndinni, þar sést vel hvar þið þurftuð að bera veiðina upp af Goðadalnum upp í skarð, upp fyrir Sellátratindinn.
Nú hefur nafni riðið á vaðið, sett inn myndir og sagt frá sinni veiðiferð, ég heiti á alla og hvet ákaft til sporgöngu

- 05 Ágú 2012 23:57
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Á hreindýraveiðum
- Svör: 26
- Skoðanir: 7704
Á hreindýraveiðum
Hvernig er það, eru spjallverjar hér á skyttuspjallinu ekkert búnir að fara á hreindýraveiðar þetta árið?
Ég skora á alla að setja hérna inn myndir frá sínum veiðiferðum!
Endilega setja inn myndir frá veiðunum ogfróðleik um vopnin, kúlurnar, færin og þunga dýranna til dæmis.
Hvernig er það með þig nafni á Norðfirði Sigurður Rúnar, ég hef grun um að þú sért búinn að fara á veiðar, ætlar þú ekki að sýna okkur myndir frá túrnum?
Tóti Óla, varst þú búinn að fara, þú varst að leita að töfrateppi?