Ég og mágur minn erum báðir að fara að veiða hreindýr í sumar. Við erum báðir að nota Lapua Scenar. Ég með 6.5x55 en hann með 6XC. Ég notaði Lapua Scenar doldið í gæs (sem er augljóslega ekki hreindýr) síðasta haust með mjög góðum árangri, eiginlega betri en ég átti von á. Litlar skemmdir en steindauðir fuglar.
Við prófuðum af gamni í vor að skjóta ballistic gel með Scenar og einhverri veiðikúlu til sambandurðar (ég eiginlega hélt ekki alveg nógu vel utan um þetta, þurfum eiginlega að endurtaka þetta einhverntíman) Það sem við sáum er að Scenar opnaðist örlítið seinna en um leið og hún byrjar að opnast er hún að gera ágætis hluti. Hérna er mynd ad kuppinum sem var skotinn með Lapua Scenar L 136 úr 6,5x55 á 100m. Kuppurinn hallaði óvart örlítið og þessvegna fór kúlan út um hliðina.
Search found 1 match
Til baka í “Skotpróf UST 2015”
- 24 Jun 2015 11:45
- Spjallborð: Hreindýr
- Umræða: Skotpróf UST 2015
- Svör: 30
- Skoðanir: 6446