Ég er að mjög mörgu leyti sammála þér Jóhann. Það er leiðindar tónn í þessu en málið er að það hefur ALLTAF verið leiðindartónn í kringum þetta. Það er ekki bannað samkvæmt núverandi lögum að eiga hljóðdeyfi en einhverjum tókst að túlka lögin þannig að það væri bannað að skrúfa þá framan á riffla af því að þá breyttist ákoman skotana og það væri "breyting á eiginleikum" skotvopna.......... það að einhverjum hafi virkilega tekist að grafa svona djúft eftir ástæðu til að BANNA hljóðdeifa er helvítis "leiðindar tónn"
Með A,B og D réttindi má maður eiga haug af skotvopnum, hlaða þín eigin skot, þú getur keypt heilan haug af skotum líka....... en það er ekki hægt að treysta þér fyrir hljóðdeyfi????????????? sem gerir ekkert annað en að minka ATH! MINKA háfaðan..... á sama tíma getur maður með A réttindi farið og keypt subsonic skot í 22LR riffilinn sinn og það heyrist minna í honum heldur en sennilega flestum ef ekki öllum miðkveiktum rifflum sem eru með hljóðdeyfi.
Mér finnst það helvítis bögg að þurfa að skrá þetta sérstaklega, það er bara auka vésen, þjónar engum tilgangi nema til að innheimta af manni meiri pening fyrir nýju skýrteini. Afhverju eru ekki sjónaukar, muzzle brake, barrel tuner, tvífætur og ólar skráningarskildir líka?
Það er bull að setja það í lög að hljóðdeyfar eigi að vera í sér hirslu???? í alvöru, hver fann upp á þessu. Er hljóðdeyfirinn svona hættulegur einn og sér að það þarf að geyma hann annarstaðar? Ég efast um að við munum finna nokkurn sem mun fara eftir þessu.
Afhverju bara miðkveikta riffla, afhverju ekki líka 22LR, 22WMR, 17HMR og 17HM2 ??? Allir þessir rifflar eru mjög háværir, sérstaklega ef það er búið að stytta á þeim hlaupið. Afhverju er ekki hægt að treysta sama manninum fyrir hljóðdeyi á 17 Hornet og 17HMR ???? eða 22 Hornet og 22WMR???
Hvað er síðan málið með háfaðan? hvað er slæmt við það að skotvopn sé hljóðlaust með öllu? (fyrir utan supersonic crack)
En þrátt fyrir þetta allt, að þá er LOKSINS! verið að taka skref, mjög stórt skref, í rétta átt. Ef þetta fæst í gegn verður kanski eftir einhver ár til viðbótar hægt að gera þetta eitthvað betur.
Search found 1 match
Til baka í “Hljóðdemparar - drög að breytingu á reglugerð opinber.”
- 25 Ágú 2016 14:00
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Hljóðdemparar - drög að breytingu á reglugerð opinber.
- Svör: 10
- Skoðanir: 5259