Sæll
Ég er með tikku í 6,5x55 með 1:8 twist. Hef verið að skjóta lapua scenar 120gr og 123gr, líka sierra 140gr game king og hef sett 49 gr af N160 á bakvið. Þetta er allt í um 2800 fetum man ekki alveg nákvæmlega hraðann en þetta er nærri lagi og nákvæmnin góð. Hef einnig prufað 100 gr sierra varmint með slatta af N150 a bakvið man ekki hve mikið en hun var á 3200 fetum og kom vel út. Ég get nú fundið nákvæmari upplýsingar um þetta ef þú villt þá máttu líka bara senda mér einkaskilaboð. Annars er þetta það sem ég hef notað og er sáttur við útkomuna.
Þarf væntanlega ekki að taka fram að byrja á mildari hleðslum og vinna sig upp en ég geri það nú samt.
Gangi þér vel.
Search found 1 match
Til baka í “Hleðslur í Howa 6,5x55”
- 15 Jan 2016 23:49
- Spjallborð: Endurhleðsla
- Umræða: Hleðslur í Howa 6,5x55
- Svör: 2
- Skoðanir: 1513