Sælir
Fór á æfingasvæðið í dag og prófaði nýja hljóðdeyfinn-A-Tek 150 Hertz frá Jóa Vill.
1. Skot með deyfi er mun neðar á skífu en án deyfis. Sama hliðarstaðsetning.
2. Hávaði er MIKLU MINNI og bakslag er nánast ekkert.( Var með 243, 100 grain)
3. Eftir 5 skot var deyfir bara volgur,svipað og hlaup.
4.Var með heyrnarhlífar í upphafi (mjög góðar), heyrði vel hvellinn en með deyfi þá heyrði ég nánast ekkert , aðeins "hviss"
Það var strekkingur frá vinstri til hægri svo öll skot eru hægra megin,skotið á 100 metrum.
Fyrsta skotið er tekið án deyfis og er hægra megin á hvítunni. Annað skotið er tekið með deyfi og er nánast lóðrétt niður í litlu skífuna.
Þriðja skotið er "grænt", fjórða orange og fimmta gult . Þarna er ég að stilla kíkirinn inn.
Search found 1 match
Til baka í “"Science of silence" - Hljóðdeyfirinn prófaður”
- 02 Apr 2017 01:41
- Spjallborð: Græjur
- Umræða: "Science of silence" - Hljóðdeyfirinn prófaður
- Svör: 2
- Skoðanir: 3794