Sæll Jón
Já þú ert að tala um Vestur Húnavatnssýslu þetta hefur ekki verið stundað í A-Hún fram að þessu spurnig hvað gerist þegar Grímtunguheiði er nú eignarland eins og hún hefur náttúrlega verið alla tíð. Okkur hefur nú fundist í lagi að menn fari til rjúpnaveiða á afréttum Blönduósbæjar sérstaklega ef menn láta vita af fé sem þar kann að leynast í leitóttu landslaginu. Þú talar um að við séum í fýlu en værir þú það ekki ef þú kaupir fasteign en síðan væri hún útskurðuð af þér á þeim forsendum að ekki hafi skjalavarsla verið í nógu góðu lagi hjá sýslumanni Skagfirðinga árið 1823. En við sjáum til hvað Blönduósbær gerir hvort þetta fer til dómsstóla eður ei.
Svo um það sem þessi umræða var nú í upphafi riffilbraut, Guðmann var ekki búið að lofa Skotfélginu nýju svæði í Draugagili þar sem hægt væri að koma upp riffilbraut án vandræða? Þar til það loforð er uppfyllt verðum við að vera duglegir að heimsækja góðviljaða nágranna okkar í Skagafirði.
Með kveðju úr Húnavatnssýslunni.
Þórður Pálsson
Search found 2 matches
Til baka í “Riffilbraut hafnað í annað sinn”
- 20 Jan 2015 11:08
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: Riffilbraut hafnað í annað sinn
- Svör: 17
- Skoðanir: 2803
- 19 Jan 2015 10:36
- Spjallborð: Riffillgreinar
- Umræða: Riffilbraut hafnað í annað sinn
- Svör: 17
- Skoðanir: 2803
Re: Riffilbraut hafnað í annað sinn
Sæll Jón Þórður Pálsson heiti ég og er einn nefndarmanna landbúnaðarnefndar Blönduósbæjar og mig langar að vita hvað það er sem nefndin hefur gert sem misbýður rjúpnveiðimönnum á Skrapatunguafrétt. Veit ekki til þess að við höfum amast við rjúpnaveiði á þessu svæði það er þá eitthvað gamalt. En endilega komdu með dæmi.Jón Pálmason skrifaði:Sælir/ar.
Ekki gott þegar skammsýnin ræður för. Skipulag er fyrir íbúana og á sífellt að vera til endurskoðunar.
Ef breytinga er þörf, þá eru breytingar gerðar á skipulaginu. En þá þarf að vera áhugi fyrir hendi, hjá þeim sem ákvarðirnar taka.
Og svo er Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar í einhverri fílu þessa dagana.
Er reyndar ekki hissa á því eins og komið hefur verið fram við rjúpnaveiðimenn varðandi þessa afrétt.
Virðist ekki vera aðlaðandi bær/sveitarfélag fyrir skotáhugafólk.