Já var búinn að sjá þessa. Er svona nánast því alveg kominn yfir á það að fá mér tvíhleypu og líklegast marocchi, hef ekki heyrt neitt slæmt um þær hingað til og samkvæmt netinu eru þetta fínustu byssur. Held að næst á dagskrá sé að fara í þessar búðir og skoða og spáSveinn skrifaði:Tek undir hrós til Marocchi, ég er bæði með tvíhleypu (Zero3 Sporting) og hálfsjálfvirka (Tecno) frá Marocchi sem hafa aldrei klikkað hingað til, sjö, niu, þrettán. Hér er ein, forveri Zero3, sem þú ættir að skoða ef þú ert á Facebook, lítið skotin á 90 kall:
https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... =3&theater
Search found 11 matches
- 19 Oct 2015 14:01
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
- 15 Oct 2015 23:16
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Er búinn að skoða svolítið og er búinn að vera að pæla í marocchi first eða marocchi first dl14, hefur einhver reynslu af þessum byssum? Get ekki fundið neitt mikið um þær, en það sem ég hef fundið er flest allt mjög jákvætt.
Þakka enn og aftur fyrir góð svör
Þakka enn og aftur fyrir góð svör
- 02 Oct 2015 23:17
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Það bætist í hópinn sem mælir með tvíhleypum, Hvers vegna tvíhleypur frekar ? Hef alltaf haldið að pumpa væri málið þar sem mér finnst ég sjá fleyri nota pumpur og meira talað um þær, eða það kannski bara vitleysa ? Er alveg tilbúinn að safna aðeina meira og kaupa mér dýrari byssu strax sem kannski endist mér þá lengur og ég mun ekki sjá eftir.
En svo annað, eru einhver merki sem eru síðri en annað eða eithvað sem maður á að forðast ? Eithvað í max 150 budgetinu.
Kv
En svo annað, eru einhver merki sem eru síðri en annað eða eithvað sem maður á að forðast ? Eithvað í max 150 budgetinu.
Kv
- 02 Oct 2015 14:13
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Þakka þér og ég geri þaðTotiOla skrifaði:Flott mál Gangi þér vel með þetta og endilega leyfðu okkur að heyra hvar þú endar (t.d. í "Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?"-þræðinum hér á spjallinu).eythoringi skrifaði:Ætla að taka mér ágætis tíma í að skoða bæði notað og nýtt, er ekkert að drífa mig að þessu. Takk annars fyrir góð svör
- 02 Oct 2015 00:57
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Skil hvað þú ert að meina. Þess vegna var ég að pæla í rem 870 og mossberg 500 til að byrja með, virðist vera að þessar séu rosalega vinsælar úti og eitt besta bang for the buck, mjög áreiðalegar og allt það.TotiOla skrifaði:Sæll enn og aftureythoringi skrifaði:eru tvíhleypurnar ekki yfirleitt dýrari en pumpur ?
Þar sem þetta er mín fyrsta byssa langar mér að fá mér eithvað í ódýrari kantinum (en samt eithvað sem hægt er að treysta á) til að prufa og sjá hvort þetta sé eithvað sem ég hef áhuga á.
Um leið og ég skil þetta viðhorf, varðandi það að kaupa eitthvað í ódýrari kantinum, þá verð ég líka að fá að bæta við mín 2 cent.
Yfirleitt fara verð og gæði saman og því muntu líklega þurfa að borga fyrir "eitthvað sem hægt er að treysta á". Einnig eru mun meiri líkur á því að þú hættir ef/þegar þú lendir í vandræðum með einhverja budget-byssu (svoleiðis sögur eru út um allt á netinu). Að sama skapi verður þetta allt miklu skemmtilegra ef byssan virkar og hentar þér vel, eins og áður hefur verið bent á að skiptir mestu máli.
Að lokum getur reynst erfiðara að losa sig við budget byssur, að hluta til út af takmarkaðri eftirspurn sem og miklu framboði.
Ég mundi þ.a.l. mæla með því að þú skoðaðir næsta skref fyrir ofan ódýrari kantinn og bíða og safna ef budget-ið leyfir það ekki. Mætti líka líta í kringum sig eftir góðum notuðum byssum.
P.s. Allar ofangreindar byssur (þær sem ég taldi upp í mínum síðasta pósti) hafa verið keyptar notaðar Hef bara lent í einni bilun og umboðsaðilinn reddaði því samstundis (þrátt fyrir að byssan væri nokkurra ára gömul og keypt notuð - þjónusta sem þú færð líklega ekki frá mörgum umboðsaðilum).
En eins og titillinn segir eru þetta bara pælingar, fer einhverntímann á næstunni og skoða þessar helstu búðir. Ætla að taka mér ágætis tíma í að skoða bæði notað og nýtt, er ekkert að drífa mig að þessu. Takk annars fyrir góð svör
- 01 Oct 2015 23:50
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
eru tvíhleypurnar ekki yfirleitt dýrari en pumpur ?Sigurður skrifaði:Ég er sjálfur örfhentur og ég myndi alls ekki kaupa byssu fyrir rétthenda, búinn að prófa það og það er ótrúlega óþægilegt að fá eldglæringar fyrir framan augun þegar þú ert að skjóta . Það er náttúrulega tvíhleypan sem er alveg klassík en ég á Ithaca pumpu sem kastar hylkinu niður og þá verður þú ekki var við þetta . Get hiklaust mælt með henni.
Kveðja
Sigurður Ólafsson
emstrur@hive.is
Þar sem þetta er mín fyrsta byssa langar mér að fá mér eithvað í ódýrari kantinum (en samt eithvað sem hægt er að treysta á) til að prufa og sjá hvort þetta sé eithvað sem ég hef áhuga á.
- 01 Oct 2015 23:44
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Var bara ekki búinn að sjá neina svoleiðis og net síðan hjá ellingsen er alveg skít léleg, þarf að fara á næstunni og kíkja í þessar búðir og skoða og sjá hvað er til og hvað ekki.Sveinbjörn skrifaði:Af hverju færðu þér ekki vinstrihandar Remington 870?
Til á lager í Ellingsen Reykjavík.
Takk fyrir skjót og góð svör allir!
- 01 Oct 2015 16:03
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Nei þessvegna spyr ég ykkur, til að sjá hvað mönnum finnst og þá fara útfrá því að skoða og svoleiðisFreysgodi skrifaði:Ég held að (miklu?) fleiri myndu mæla með Benelli framyfir Rem 870 - svo þú skalt ekki hafa áhyggjur af því ef einhver villuráfandi sála hafi talað illa um Benelli við þig
- 01 Oct 2015 13:21
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Skil þig. Hef skoðað hana eithvað en svo hef ég heyrt að ég eigi ekki að fá mér benelli, hef samt engin rök fyrir þvi.krossdal skrifaði:Ef þú ert að hugsa um að fá þér pumpu þá mundi ég skoða að fá mér Benelli Super Nova. Eftir því sem ég best veit getur þú breytt örygginu á henni svo það passi fyrir örvhentar skyttur og einnig fylgja með skífur til að breyta bæði kastinu og skeftishallanum til að aðlaga byssuna að skyttunni.
Það skiftir öllu máli að byssan passi skyttunni.
Mín tvö sent.
Mbk,
KK
Skoða það.
- 01 Oct 2015 13:19
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Re: Byrjanda pæling.
Hef pælt í því og það er alveg inni í myndinni, en er meira hrifinn af pumpu. Ertu með einhverja í huga ?TotiOla skrifaði:Hefur þú eitthvað skoðað það að fá þér tvíhleypu, eða er það alveg út úr myndinni?
- 01 Oct 2015 01:05
- Spjallborð: Byssur
- Umræða: Byrjanda pæling.
- Svör: 31
- Skoðanir: 5501
Byrjanda pæling.
Þannig er mál með vexti að ég er búinn að vera skoða svolítið á netinu og er farið að langa að fá byssuleyfi og kaupa mér haglabyssu. Er búinn að vera að skoða og var orðinn mjög hrifinn af remington 870 en þá fattaði ég það að safety-ið er á svolítið slæmum stað fyrir mig þar sem ég er örfhentur. Þá datt mér mossberg 500 til hugar en hef ekki enn fundið hana á netinu hjá þessum helstu byssu og veiðibúðum.
Ég er að pæla hvað þið reynsluboltarnir mynduð gera ?
Með hvaða merkjum og týpum mælið þið ?
Ætla mér að nota hana til æfinga til að byrja með og svo líklegast gæs,rjúpu og þessháttar.
kveðja.
Ég er að pæla hvað þið reynsluboltarnir mynduð gera ?
Með hvaða merkjum og týpum mælið þið ?
Ætla mér að nota hana til æfinga til að byrja með og svo líklegast gæs,rjúpu og þessháttar.
kveðja.