Sæll Björn
Ég get nú ekki svarað þessu með brake/hljóðdeyfi þar sem ég hef ekki mikla reynslu af hunter rifllum en ég hefði haldið að erfitt væri að snitta mörg af þessum þynnri/léttari hlaupum. *Bætt við* Annars virðist, eftir létta google-un, sem margir séu að setja brake á 300 win. mag. hunting/hunter riffla. Þannig að þetta er pottþétt hægt, en fer auðvitað eftir sverleika hlaups.
Varðandi hinar spurningarnar þá get ég sagt þér að:
- Kúluúrval ætti að vera nákvæmlega það sama í 6,5x55 og 6,5-284 þar sem að sama 6,5mm (6,7mm - .264) kúla er notuð. Hins vegar er líklega mjög mikill munur á úrvali af verksmiðjuhlöðnum skotum, þar sem 6,5x55 hefur vinninginn enda mun eldra og útbreiddara.
- Bakslag af 6,5-284 þekki ég ekki en það ætti nú ekki að vera meira en af .308 win, sem þú segist þekkja af reynslu, en það fer þó að einhverju leyti eftir kúlu og hleðslu. Sjá nánar:
http://www.chuckhawks.com/recoil_table.htm
Aðrir hér (t.d. eigendur 6,5-284) ættu svo að geta frætt þig um feril og drægni. Munurinn á .308 win og 6,5x55 er svo ekki það stórkostlegur að það ætti að hafa úrslitaáhrif í vali að mínu mati.
Vona að þetta hjálpi eitthvað
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_e_biggrin.gif)
Mbk.
Þórarinn Ólason