Andlitslifting á riffli

Allt sem viðkemur byssum
iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:
Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 10 Feb 2014 12:14

Hérna er það sem ég er að dunda við þessa dagana.

Það er svoltið eftir, á eftir að olíubera þetta nokkuð oft í viðbót en svona leit gripurinn út þegar ég byrjaði.
Viðhengi
243 5.jpg
það hefur brotnað magasinplatan og það hefur verið hrækt einhverri annari plötu undir í staðinn með ljótri suðu og tilheyrandi
243 3.jpg
243 2.jpg
243 1.jpg
243 4.jpg
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
257wby
Póstar í umræðu: 2
Póstar:193
Skráður:21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn:Guðmann Jónasson
Staðsetning:Blönduós

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af 257wby » 10 Feb 2014 12:35

Þessum hefur greinilega ekki verið hlíft, hlakka til að sjá hann þegar þú verður búinn að taka hann í gegn.
Ætlar þú að fá þér nýja botnplötu eða reyna að laga þessa til?

kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 1
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 10 Feb 2014 12:44

Það verður gaman að fylgjast með þessu
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

User avatar
gylfisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:598
Skráður:22 Feb 2012 13:03

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af gylfisig » 10 Feb 2014 13:41

Hvaða tegund er þessi kíkir?
Getur verið að hann sé Eicho ?

Er lika að leita að Sako 222 sem ég átti . Hann var með þungu hlaupi, og a honum var 6-18x Redfield kíkir. Ég fékk leturgrafara til að skera út mynd á afturskeftið, sem tókst mjög vel. Mér þótti þessi riffill afar fallegur, og sá eftir að hafa selt hann. En ég seldi, til að fjármagna kaup á Remington 40 XB BR. sem reyndar kom aldrei (:
Frétti svo einhvern tíma af því að þessi Sako væri á Akureyri.
Kannast einhver við þennan riffil?
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 10 Feb 2014 15:47

Þetta er riffill sem móðurbróðir minn átti en er nú í eigu föður míns.
Honum hefur greinilega ekki verið hlýft enda hef ég grun um að hann hafi veið mikið um borð í bátum og trillum, frændi minn skaut mikið af sel með honum og töluvert af tófu líka, svo þetta hefur verið verkfæri en ekki stofustáss :D

En eg ætla allavega að reyna að lappa aðeins upp á hann.

Það verður smíðuð ný plata í hann, svo skelli ég þvi stykki i blámun og þá fer þetta að líta sæmilega ut, vonandi allavega.

Þetta verkfæsi er mossberg í cal 243 og kikirinn er weaver, með fastri stækkun sem eg hef ekki hugmynd um hver er :shock:

Þetta er kannski ekkert merkileg græja, en það var nu drepið hreindyr með þessu ( eins og hann er á myndinni, semsagt án tvífóts) á 220 metra færi fyrir 2 árum síðan.

Þar sem að kostar mig ekkert meira en þennan brúsa af olíu og svo blámunina á botnplötunni, að gera þetta upp þá er bara gaman að dunda i þessu
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af gkristjansson » 10 Feb 2014 20:05

Það verður virkilega gaman að sjá hvernig þetta kemur út.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 18 Feb 2014 23:02

Skelli inn einni mynd af skeptinu eins og það er núna
Viðhengi
skepti 1.jpg
Skeptið eins og það er núna
Árnmar J Guðmundsson

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 21 Feb 2014 00:11

Ein spurning fyrir ykkur sem hafið sent hluti sem þið hafið smíðað í blámun.

Hvaða stál er best að nota?

Er í lagi að nota ryðfrítt stál?

Eða hvað henta best, þá er ég að hugsa um hvernig bláminn kemur út
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 2
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af petrolhead » 21 Feb 2014 09:15

Sæll.

Verst að myndin er ekki í betri upplausn en mér sýnist skeptið bara vera orðið helv... flott hjá þér :)

Varðarndi stál þá er ekki hægt að bláma ryðfrítt (leiðrétti mig mér fróðari menn sé það rangt hjá mér!!!)
Ég smíðaði handföng á tvo mauser bolta og notaði í það gamlan öxul sem er þá ekki ósennilegt að sé 52 stál. Ég get ekki séð neinn mun á blámanum á bolta og handfangi en hins vegar þá MIG sauð ég annað handfangið á og það var annar blær á blámanum á suðunni, ég fékk svo annan bláma sem er dekkri og það nægði til að þetta hætti að sjást, en það er líklega öruggara að TIG sjóða upp á þetta.

kv
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 21 Feb 2014 09:33

Árnmar, það er spurning að fá álit hjá Jóa vini mínum byssusmið um þetta mál, hann ætti að hafa gott vit á þessu.
Síðan er líka spurning hvort hann vill tjá sig um þetta hérna, hann kíkir stundum hérna inn!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 21 Feb 2014 11:11

Ég er búinn að ræða við Jóa og það er rétt sem kom fram hér að ofan.

Ryðfrítt teku ekki bláma svo nú veit ég það og þá er bara að fara að smíða til plötuna.

Ég skal svo reyna að koma með mynd í betri upplausn þegar græjan er komin saman :oops:
Árnmar J Guðmundsson

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 11 Mar 2014 21:56

Þá ætla ég ekki að gera meira fyrir þennan i bili allavega.
Ég tók þá ákvörðun að leyfa djúpu rispunum að vera, það er viss karakter i þeim.

ég bara fjarlægði lakkið, pússaði hann aðeins og olíubar skeptið.
Og svo var botnplatan á magasíninu löguð og blámuð.

Það er örlítill munur á þessu núna

Þið afsakið gæðin á myndunum
Viðhengi
Botn.jpg
riffillinn.jpg
Framskepti.jpg
Afturskepti.jpg
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
257wby
Póstar í umræðu: 2
Póstar:193
Skráður:21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn:Guðmann Jónasson
Staðsetning:Blönduós

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af 257wby » 12 Mar 2014 16:56

þetta lítur nú bara ansi vel út hjá þér :)

kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.

User avatar
Jón Pálmason
Póstar í umræðu: 1
Póstar:177
Skráður:16 Ágú 2010 21:54
Fullt nafn:Jón Pálmason
Staðsetning:Sauðárkróki

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af Jón Pálmason » 12 Mar 2014 18:09

Sæll Árnmar.
Vissi að þetta myndi lukkast hjá þér.
Til lukku með gripinn.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 12 Mar 2014 19:24

Takk takk.

Ég er mjög ánægður, svo er bara spurning hvort að eigandinn verði sáttur með þetta :D
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Stebbi Sniper
Póstar í umræðu: 1
Póstar:492
Skráður:09 Jun 2012 00:58
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af Stebbi Sniper » 13 Mar 2014 00:12

Flott vinna Árnmar, veistu c.a. hvað fór mikið af tíma í þetta hjá þér?
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 13 Mar 2014 09:10

Já svona gróft veit ég það.

Ég þurfti að setja lakkleysinn á 3 sinnum til að vera viss um að ná öllu upp úr teglingunni, setti fyrst bara í teglinguna, til þess að vera ekki með lakkleysinn á sjálfu skeptinu eftir að lakki ð væri farið af.
Ég veit ekki hvort þetta þarf en ég varð allavega ekki sáttur fyrr.

Handavinna í kingum þetta er rúmur hálftími í hvert skipti, enga stund að setja þetta á en heldur lengur að skola leysinn af a eftir, segjum 2 tímar í allt.

Ég bara pussaði þetta létt svo það tók ekki nema um hálf tima.

Svo var þetta nuddað með olíu í 10 mín á dag í 14 daga sem gera ca 2 og hálfan tíma.
Að bua til nýja botnplötu tok 2 tíma, sníða hana til, sjóða og pússa, þetta er svoltið tímafrekt þetta smádót.

Fór með þetta í blámun og sá tími er ekki reiknaður inn í þetta.

Þannig að mér telst til að ég sé búinn að nota 7 klukkutíma í þetta

svona gróft reiknað
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 2
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af petrolhead » 14 Mar 2014 22:58

Þú hefur þá átt 7 góðar klukkustundir félagi :D
Ég sé ekki betur en þetta sé bara vel lukkað hjá þér, engin ástæða til að massa niður svona gömul "battle scars" þau segja bara söguna.
Botnplatan er flott hjá þér !!

Til lukku með þetta.
MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

iceboy
Póstar í umræðu: 9
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Andlitslifting á riffli

Ólesinn póstur af iceboy » 26 Mar 2014 19:14

Ég prófaði riffilinn aðeins með nýrri kúlu og hleðslu.

Þetta er semsagt Mossberg 800 í cal 243 með 100gr Interlock kúlu.
Þetta er bara fyrsta prófun en alveg sæmilegt til að byrja með held ég
Viðhengi
skotprófun.jpg
Árnmar J Guðmundsson

Svara