Sælir,
Veit einhver hérna hvernig maður tekur í sundur magasín túbuna í Berettu ES100?
Ég svona ímynda mér að þetta sé með skrúfgang og sé skrúfað af, en ég þori bara ekki að taka neitt á þessu.
http://stevespages.com/pdf/beretta_es100.pdf
Það er s.s. rörið merkt A8 á myndinni neðst á síðu 4 sem ég vill losa af.
Að taka Berettu ES100 í sundur
Kveðja Bjarni Valsson
- Björn R.
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:105
- Skráður:10 Feb 2013 19:10
- Fullt nafn:Björn Jensson
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Að taka Berettu ES100 í sundur
Má ég fyrir forvitnis sakir spyrja af hverju þú vilt taka þetta rör af? Ég er með Berettu sem gengur undir tveimur nöfnum. Stundum nefnd A300/400 stundum Outlander. Henni svipar hins vegar til þinnar að nokkru leyti. Ég hef aldrei tekið hana meira í sundur en að fjarlægja hlaup og stimpil þegar ég er að þrífa og einu sinni eða tvisvar tók ég gikkinn úr og þreif eftir að hafa verið í blautum sandi. Mig minnir hins vegar að ég hafi lesið í handbókinni að ef ég vildi eiga eitthað við magasínið sjálft þá væri það verkefni fyrir byssusmið. Handbókinni tókst mér hins vegar að glata þannig að ekki ætla ég samt að hengja mig uppá það
Vonandi gengur þér vel með þetta.
KV
BRJ
Vonandi gengur þér vel með þetta.
KV
BRJ
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
Re: Að taka Berettu ES100 í sundur
Eina sem mig grunar að ástæðan fyrir að fjarlægja magasín túbuna er til að setja stærra magasín í staðin, t.d. 10 skota. En hvað varðar það mig.
Ég sé allavega ekki leið til að taka það af á minni, því miður.
Kv.
Ég sé allavega ekki leið til að taka það af á minni, því miður.
Kv.
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
Re: Að taka Berettu ES100 í sundur
Ástæðan fyrir því að ég ætlaði að taka þetta í sundur var sú að ég fór með byssuna á sjóinn og skellti henni svo í sturtu eftir það og ætlaði svo að rífa hana alveg í spað til að þrífa hana. En ég verð líklega bara að láta nægja að spreyja inn í þetta.
Það var allavega kannski ágætt að ég fór ekki að beita einhverju afli á þetta
Það var allavega kannski ágætt að ég fór ekki að beita einhverju afli á þetta
Kveðja Bjarni Valsson
- Björn R.
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:105
- Skráður:10 Feb 2013 19:10
- Fullt nafn:Björn Jensson
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Að taka Berettu ES100 í sundur
Þegar ég fer á sjófugl hef ég látið duga að spreyja með WD-40 og strjúka af með klút, geri þetta bæði fyrir og eftir. Svo þríf ég hlaup að innan með hefðbudnum aðferðum. Nota fyrst snák og bursta svo að innan með einhverjum þar til gerðum hreinsiefnum sem ég á til i það sinnið. Þetta virðist duga. Ég hef aldrei tekið hólkinn með mér í bað
Þegar öllu þessu er lokið strýk ég af byssunni með klútum sem eru seldir með einhverju silikon efni í.
Með því að gera þetta svona hef ég allavega sloppið við ryð og annan ósóma
Svo þekki ég mann sem notar wd 40 eingöngu og hreinsar byssuna helst ekki að innan. Hann er búinn að skjóta gæsir, rjúpur og svartfugl í 30 ár með sinni Browning byssu. Hún er enn í fullu fjöri
Þegar öllu þessu er lokið strýk ég af byssunni með klútum sem eru seldir með einhverju silikon efni í.
Með því að gera þetta svona hef ég allavega sloppið við ryð og annan ósóma
Svo þekki ég mann sem notar wd 40 eingöngu og hreinsar byssuna helst ekki að innan. Hann er búinn að skjóta gæsir, rjúpur og svartfugl í 30 ár með sinni Browning byssu. Hún er enn í fullu fjöri
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
bjorn(hja)stopp.is
618-3575