Versla frá usa

Allt sem viðkemur byssum
marin
Póstar í umræðu: 2
Póstar:72
Skráður:17 May 2012 04:42
Versla frá usa

Ólesinn póstur af marin » 13 Mar 2016 12:43

Sælir félagar.
Hafið þið lent í því að vera versla frá Brownells og í restina á ferlinu þá er eins og þeir neiti kredikortinu frá mér, sendi þeim póst og það komu bara bull svör, "endurræstu tölvuna, talaðu við bankann þinn,,
Allskona svona svör en ekkert virkar, samt bjóða þeir uppá að senda erlendis.
Kv Árni
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð

Kristmundur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:75
Skráður:30 Jul 2012 17:18

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af Kristmundur » 14 Mar 2016 11:45

Ég er búin að versla mikið frá þeim og aldrei neitt vesen.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson

User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 1
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af petrolhead » 14 Mar 2016 14:55

Sæll Árni.

Ég hef verslað frá Brownells og Sinclair (sama battery) og það hefur ekki verið neitt vandamál. Ég lenti hins vegar í svona brasi þegar ég ætlaði að versla bílavarahluti á síðu sem heitir Rockauto, þá gat ég aldrei gengið frá greiðslunni þrátt fyrir margar tilraunir, verslaði svo þessa hluti á Amazon fyrir rest og hef aldrei vitað af hverju þetta gekk ekki því tveir kunningjar mínir hafa verslað á Rockauto án nokkurra vandræða.
Það sem ég hef rekið mig á í þessu í gegnum tíðina er að ég hef stundum þurft að nota íslensku stafina þegar ég gef upp nafn á kreditkortinu og svo ekki mátt nota þá á öðrum síðum, fer eftir því hvaða greiðslumiðlari á í hlut, þú gætir prófað það ef þú ert ekki búinn að því nú þegar.
Annað sem ég hef rekið mig á, snýr að pöntuninni sjálfri, er að ég hef stundum þurft að bæta 00 framan við póstnúmerið til að það sé samþykt þar sem þeir eru með 5 stafa póstnr í Ameríku.

MBK
Gæi
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

G.ASG
Póstar í umræðu: 1
Póstar:16
Skráður:06 Ágú 2011 22:09

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af G.ASG » 18 Mar 2016 22:46

Stundum þarf að fá visa til þess að opna fyrir færslur að utan. Ég hef lent í þessu líka. Hringja bara í þjónustuverið og tjékka á því hvort það sé lokað fyrir erlendar greiðslur yfir einhverri vissri upphæð

Valdi Long
Póstar í umræðu: 1
Póstar:3
Skráður:30 Ágú 2015 17:03
Fullt nafn:Valdimar Örn Ásgeirsson

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af Valdi Long » 23 Mar 2016 18:02

Sæll Árni, ég lenti í sama veseni fyrir nokkrum dögum og sendi fyrirspurn.
Svarið var: ekki nota séríslenska stafi, bara þá sem eru notaðir í USA.
Ég prófaði það, og rann í gegn.

Kv. Valdi.

User avatar
Aflabrestur
Póstar í umræðu: 2
Póstar:490
Skráður:25 Feb 2012 08:01
Staðsetning:Sauðárkrókur

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af Aflabrestur » 24 Mar 2016 08:14

Sælir.
Hef lent í þessu þá vantaði eh. öryggisvottun á kortið frá visa!!! :evil:
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson

prizm
Póstar í umræðu: 1
Póstar:49
Skráður:15 May 2012 10:07

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af prizm » 01 Apr 2016 22:05

Væntanlega ertu að lenda í því sem Jónbi skrifar hérna fyrir ofan.
Það þarf að opna fyrir erlendar færslur og vera með öryggisvottun.

Ég er nýlega búinn að vera panta mér hitt og þetta frá USA og hef amk ekki lent í neinu veseni með kortið mitt.
Með kveðju
Ragnar Franz

marin
Póstar í umræðu: 2
Póstar:72
Skráður:17 May 2012 04:42

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af marin » 08 Apr 2016 06:43

Sælir og takk fyrir svörin, ég er á sjó núna en ég reyni þetta þetta kannski aftur þegar ég kem heim, netið út á sjó er ekki það gott að það bjóði upp á svona tilraunir.
Kveðja.
Árni Kristinsson
Fjallabyggð

User avatar
Aflabrestur
Póstar í umræðu: 2
Póstar:490
Skráður:25 Feb 2012 08:01
Staðsetning:Sauðárkrókur

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af Aflabrestur » 13 Apr 2016 20:03

Sælir.
Var að enda við að ganga frá pöntun frá Sincler sem er nú sama batteryið og það rann í gegn eins og ekkert væri ss. ekkert merkilegt tvífætur og smá dót í rest 8-)
að vísu hef ég pantað frá þeim nokkrum sinnum áður og ekkert mál nema þeir vijla ekki selja mér hylki :evil:
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson

Freysgodi
Póstar í umræðu: 1
Póstar:58
Skráður:20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn:Jón Valgeirsson

Re: Versla frá usa

Ólesinn póstur af Freysgodi » 14 Apr 2016 12:27

Svo má nú oft nota Paypal - sem hjálpar upp á svona mál

Svara