kúkur í lauginni

Allt sem viðkemur byssum
User avatar
petrolhead
Póstar í umræðu: 1
Póstar:346
Skráður:08 Ágú 2012 08:31
Fullt nafn:Garðar Tryggvason
Staðsetning:Akureyri
kúkur í lauginni

Ólesinn póstur af petrolhead » 18 Mar 2018 13:10

Sælt veri fólkið.

Lenti í smá leiðindum með hana rauðhettu litlu, stundum þegar ég var að hleypa af þá var eins og gikkurinn stæði á sér svo skotið fór ekki fyrr en ég var búinn að halda í gikkinn um stund og það kom líka fyrir að skotið hljóp ekki af fyrr en ég fór að slaka á gikknum aftur. Í móti er svona lagað ansi hreint leiðinlegt svo það var ekki við þetta búið.
Ég plokkaði því járnið upp úr spítunni og svo gikkinn úr, þetta er Bix'n Andy gikkur og það er plata á hliðinni á honum sem er hægt að taka af til að sjá inn í gikkinn.
Þegar ég var búinn að opna hann og skoða í góða stund tók ég eftir einhverjum aðskotahlut undir stykkinu sem heldur við pinnann í boltanum (held að þetta heiti top sear á ensku) ég plokkaði þetta drasl úr með flísatöng og skoðaði og komst helst að því að þetta væri plastspónn utan af hreinsistöng....en er þó alls ekki viss um að svo sé. Þetta virtist alla vega vera meinið því hann hleypir nú af án þess að hika nokkuð, en það þarf greinilega ekki mikið til að setja nákvæmnissmíð úr jafnvægi. Nokkrar myndir til frekari útskýringar.
Viðhengi
WP_20180101_20_20_29_Pro.jpg
WP_20180101_20_20_29_Pro.jpg (91.79KiB)Skoðað 2752 sinnum
WP_20180101_20_20_29_Pro.jpg
WP_20180101_20_20_29_Pro.jpg (91.79KiB)Skoðað 2752 sinnum
WP_20180101_19_52_19_Pro.jpg
WP_20180101_19_52_19_Pro.jpg (110.4KiB)Skoðað 2752 sinnum
WP_20180101_19_52_19_Pro.jpg
WP_20180101_19_52_19_Pro.jpg (110.4KiB)Skoðað 2752 sinnum
WP_20180101_19_51_57_Pro.jpg
WP_20180101_19_51_57_Pro.jpg (101.68KiB)Skoðað 2752 sinnum
WP_20180101_19_51_57_Pro.jpg
WP_20180101_19_51_57_Pro.jpg (101.68KiB)Skoðað 2752 sinnum
Garðar Tryggvason
Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!

Svara