Síða 1 af 1

Stevens 320 pumpa

Posted: 02 Dec 2019 13:32
af karlguðna
Hafa einhverjir hér verslað svona verkfæri ? Hvenig hefur hún þá komið út ? Fékk mér eina á föstudaginn og fór með hana til baka í dag þar sem gikkurinn virkaði ekki,, hleypti ekki af ,,, þeir vildu fá að skoða hana og skildi ég hana eftir hjá þeim en betri þjónusta hefði verið skipta út gikkverkinu og kúnnin væri sáttur en það verður gaman að sjá hvað verður.. Endilega segja mér hvaða reynslu menn hafa af þessum byssum !!

kv Karl G

Re: Stevens 320 pumpa

Posted: 02 Dec 2019 13:47
af karlguðna
HAHAHA Var varla búín að sleppa enter takkanum þegar að Vesturrastar menn hringja og segja gripinn kominn í lag og bjóðast til að skutla byssunni á mig í Hveragerði eftir lokun,,,,, svo ekki er það ónýt þjónusta en svo er að vona að gripurinn dugi á svartfuglinn :)

kv:Karl G

Re: Stevens 320 pumpa

Posted: 15 Dec 2019 22:33
af karlguðna
Jæja gat loksins farið á skotsvæði og prófað pumpuna og viti menn mér tókst að skjóta 4 skotum en þá var allt fast ! gat ekki pumpað eftir fjórða skot
Fór heim og tók hana í sundur og þurfti að snúa snúningboltanum til baka með handafli ,,,,, virðist vera svoddan grodda smíð að það gæti þurft að slípa til bolta og grip sæti, virðist virka flott núna án skota en reyni fljótlega aftur.

sem sagt mæli ekki með Savage/stevens 320 haglabyssu .
kv

Re: Stevens 320 pumpa

Posted: 21 Dec 2019 11:52
af petrolhead
Það er lítið gaman að fara með svona grip í veiði og vita aldrei hvort þetta virkar eða virkar ekki :-/

Re: Stevens 320 pumpa

Posted: 23 Dec 2019 17:58
af karlguðna
Það segir þú satt Garðar , er ekki sérlega bjartsýnn á framhaldið , tek allavegana gömlu einhleypuna með til öryggis, þó hún sé u.þ.b. 30 ára þá slær hún ekki feilpúst :)