70 graina Sierra Blitz

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Reglur spjallborðs
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
heimirsh
Póstar í umræðu: 1
Póstar:36
Skráður:30 May 2012 19:20
70 graina Sierra Blitz

Ólesinn póstur af heimirsh » 18 Mar 2014 09:13

Sæl

Er með spurning er varðar Sierra Blitzking 70 graina í .243 algeng og vinsæl hleðsla er 42,2 grain af n-140 undir þessa, en ég finn enga hleðslutöflu sem fer svo hátt, getur einhver bent mér á hleðslutöflur fyrir þetta eða deilt sinni reynslu, hún hefur reyndar verið að koma vel út með þessu en mér finnst þetta óþægilegt að fara svona hátt ef ég finn það ekki í töflum.
Sierra er með hámarkshleðslu 38,6 grain af n-140 sýnist mér.

kv
Heimir Sigurður Haraldsson
Heimir S Haraldsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: 70 graina Sierra Blitz

Ólesinn póstur af Gisminn » 18 Mar 2014 09:19

Sæll notar ekki Hlað þessa töflu til viðmiðunar þar sem Hornady 70gr kulan er með 44.5 max
http://www.vihtavuori.com/en/reloading- ... ester.html
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

Feldur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:20
Skráður:28 Jun 2012 09:14

Re: 70 graina Sierra Blitz

Ólesinn póstur af Feldur » 18 Mar 2014 09:33

Ég hlóð þessa kúlu í Sako 85 sem ég átti,Lapua hylki og CCI primer. Ég fór upp í 43,0 án þrýstimerkja og mældi ég kúluna á 3500 fps. Ákvað að fara ekki hærra með hleðsluna þar sem ég var sáttur við hraðann og þessi hleðsla var þokkalega nákvæm.

Feldur
Ingvar Ísfeld Kristinsson

konnari
Póstar í umræðu: 1
Póstar:343
Skráður:12 Mar 2012 15:04

Re: 70 graina Sierra Blitz

Ólesinn póstur af konnari » 18 Mar 2014 09:45

Ég er löngu hættur að notast við Sierra bókina ef ég er að nota Vihta Vuori púður ! Sierra bókin er oft langt undir hámarki þegar kemur að VV púðri, ég veit ekki af hverju en það er áberandi. Kannski eru þeir eitthvað smeykir varðandi lögsóknir :?:

Ég hef t.d. rekist á það í Hornady bókinni að hámark fyrir 87gr. kúlu og VV púður fyrir .243 var lægra en lágmark í VV bókinni :!: :?:

Þetta olli því að bolti festist í riffli hjá einum sem ég þekki því það var of lítið púður í hylkinu !
Kv. Ingvar Kristjánsson

Svara