MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Reglur spjallborðs
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
karlguðna
Póstar í umræðu: 3
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af karlguðna » 18 May 2015 22:33

Sælir félagar , ég var að fjárfesta í nýjum Norma hylkjum og tók eftir því er ég var að trimma þau að þau voru misstíf upp á stýringuna í trimmaranum,,, spurningin er , þarf maður að sæsa hylkin og er þá nóg að nekka þau ?? hylkin eru 270 cal ef það skiptir máli, væri þakklátur fyrir góð svör,, :P
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

User avatar
sindrisig
Póstar í umræðu: 1
Póstar:313
Skráður:09 Oct 2010 08:45
Staðsetning:Neskaupstaður

Re: MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af sindrisig » 18 May 2015 23:26

Sumir hafa þá reglu að trimma og endurforma ný hylki. Það er s.s. ekkert sem segir að þess þurfi en það er ekkert sem mælir á móti því.

Fullsize-a fyrst og trimma svo.
Sindri Karl Sigurðsson

karlguðna
Póstar í umræðu: 3
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af karlguðna » 19 May 2015 17:22

OK , takk fyrir þetta Sindri, :D
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

User avatar
Sveinbjörn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:17 Jun 2012 23:49

Re: MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af Sveinbjörn » 19 May 2015 22:03

Ný hylki sem rekið hafa á fjörur mínar hafa ekki fengið neina sérstaka meðhöndlun aðra en að þrykkja hvellhettu í og púður á viðeigandi stað og kúlu í gatið. Eftir fyrstu umferð nota ég oftast háls-dæja og það hefur komið fyrir að ég hafi yddað og lagað til brúnir.

Til stendur að fjárfesta í rafknúnu apparati til þeirra verka og hef ég fréttir af því að von sé á slíku tæki til landsins.

En ég gæti vel að því að það sé smurt bæði að utanverðu og inn í háls þegar ég endurhleð. Það má reka margar raunir til þeirra mistaka að reka í skráfþurt. Hvort heldur um er að ræða dæja eða annað sem mönnum huggnast kann.

Sé smurt ríflega geta komið bollar á hylkinn og séu hylki viðkvæm hvað það varðar er oftar en ekki hæfilegt að smyrja annað eða þriðja hvert. Það er spindill inn í dæja sem gengur út og inn og geta menn reynt það við aðrar aðstæður og með öðrum græjum hvernig það er að fara í ósmurt gat.

Tumbler nota ég talsvert og hef þann hátt á að þegar búið er að þrengja háls fara hylkin í dallinn og malla þar. Með því móti hverfa öll smurefni sem hugsanlega geta orðið eftir inn á hálsi og því rennur púður greiðlega á sinn stað.

Vissulega hefur oftar en ekki verið ásettningur um vandaðri vinnubrögð þar sem nördaskapurinn fengi öllu ráðið. En tímaskortur og leti hafa verði mér afar liðleg fram til þessa og einhvern vegin sleppur þetta til.

En til að halda öllu til haga þá stendur það til þegar mér áskottnast sjö sunnudagar í viku hverri að gera þetta á metnaðarfyllri hátt.

Þá verða öll hylki viktuð og flokkuð Flái að innanverður tekinn og skafið af brún að utanverðu. Hylki sett í hljóðbað og tumbler til að fá rétta gljáan. Svo þarf að gæta að því að rugla ekki hylkjum saman og sérstaklega er varasamt og vera td. með hylki sem hefur verið skotið af tvisvar og blanda því saman við þrískotið hylki.

En þar til það kemur að því að ég eigi sjö sunnudaga í viku læt ég mér það duga að taka þau hylki frá sem eru farin að rifna á hálsi.

Og er ég meira segja svo djarfur að henda hinum ýmsu hylkjum í tumbler og þar sem mín gleraugu hafa dofnað þá er mér ömögulegt að lesa af botni hverra gerðar hvert hylki er.
En sem komið er hefur það ekki valdið mér vandræðum og þar sem ég verð seint keppnismaður kemur það ekki að sök. En að lokum er gott að huga að því að hylki lengjast við hverja notkun mismikið eftir gerð og hverrsu heit er hlaðið.

Sjö sunnudaga eiga þeir sem komnir eru af almennum vinnumarkaði og hafa fátt annað við um að vera en að búa til vandamál.
Bestu kveðjur
Sveinbjörn Guðmundsson

User avatar
oskararn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:30
Skráður:18 Dec 2012 11:35
Fullt nafn:Óskar Arnórsson
Staðsetning:Akranes

Re: MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af oskararn » 19 May 2015 23:57

Góður.
Mér líður svo miklu betur þegar ég fæ svona pistil frá Svenna, hann á svo gott með að koma orðum að einföldum hlutum sem við vitum að eru að plaga okkur en við sjáum ekki lausnina.
Er þetta keppnisreynslan eða bara "hausinn" - heilastarfsemin?
Óskar Arnórsson, Akranesi
oskararn@gmail.com

karlguðna
Póstar í umræðu: 3
Póstar:469
Skráður:13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn:guðmundur karl guðnason

Re: MEÐHÖNDLUN Á NÝJUM HYLKJUM ???

Ólesinn póstur af karlguðna » 23 May 2015 21:38

Jæja búin að prófa,,, Trmmaði,, neckaði, og allt eins og blómstrið eina :D :D takk fyrir innleggið :D
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.

Svara