Síða 1 af 1

Umhverfisverðlaun.

Posted: 29 Sep 2013 10:13
af Jón Pálmason
Sælir/ar.

Skotfélagið Ósmnn hlaut nýlega umhverfisverðlaun sem Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar veita fyrir snyrtilegt umhverfi.
Okkur þótti að sjálfsögðu vænt um þessa viðurkenningu og teljum hana ekki aðeins okkur til framdráttar, heldur einnig öðrum skotfélögum.
Það að hafa snyrtilegt í kringum okkar aðstöðusvæði skapar jákvæða ímynd og gott umtal.
Eitthvað sem okkur veitir ekki af í dag.
Sjá nánar á heimasíðu Ósmanns. http://www.osmann.is

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 29 Sep 2013 10:23
af Gisminn
Til hamingju með þetta

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 29 Sep 2013 18:16
af 257wby
Félagar mínir hjá Ósmann eru virkilega vel að þessarri viðurkenningu komnir! Öll umgengni til mikillar fyrirmyndar hjá þeim!

kv.
Guðmann

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 30 Sep 2013 15:37
af Stebbi Sniper
Glæsilegt Ósmenn, til hamingju með þetta!

Alltaf gaman að heyra af því þegar skotfélög standa sig vel og Ósmenn eru til fyrirmyndar hvað rekstur skotsvæðis varðar. Orðsporið sem fer af ykkur er allavega gott.

Á reyndar enn eftir að heimsækja ykkur, en það verður örugglega í náinni framtíð.

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 30 Sep 2013 17:13
af Jón Pálmason
Sælir.
Takk fyrir góð orð.
Og Stebbi, þú ert velkominn hvenær sem er.

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 30 Sep 2013 18:54
af Morri
Ég ætlaði mér að renna að þessu títt umrædda skotsvæði þegar ég var á rúntinum þarna framhjá í byrjun ágúst.
Þá reyndist svæðið ekki opið.

Hefði verið gaman að sjá...

Til lukku með þetta

Ómar

Re: Umhverfisverðlaun.

Posted: 30 Sep 2013 18:58
af Jón Pálmason
Sæll Ómar.
Hefðir bara átt að hringja. Ekkert mál að opna fyrir þig.
Ekki renna aftur framhjá án þess að reyna það.