Vortex Viper er vafalaust fín græja. Hef ekki heyrt neitt slæmt um hann. Hann Árnmar (Iceboy) ætti að geta frætt þig betur um þá. Ef ég man rétt þá er hann með svoleiðis á Mauser-num sínum.arrinori skrifaði:Mér líst vel á þennan vortex viper, það er alveg rétt, það er sennilega betra að hafa möguleikan á meiri stækkun þegar að verið er að skjóta smærri dýr á lengri færum. En það þíðir að ég þarf að safna aðeins lengur áður en ég fer í að versla þetta allt þar sem að þetta er þá að verða komið í 360 kall ef við reiknum með að riffillinn kosti um 200 kall.
Ég er svo með Vortex Viper PST sem er næsta lína fyrir ofan og býður m.a. upp á turna í stíl við kross. S.s. 0.1 MRAD færslu og MRAD kross. Það gerir mælingar og stillingar á sjónaukanum mjög auðveldar og þægilegar.
Annars tek ég undir með Konnaranum með Meopta. Top sjónaukar fyrir peninginn og aðeins ódýrari en Vortex-inn, en þó ekki með alla (óþörfu?) fítusana
Hér er stutt myndband um Vortex (og nóg af þeim á Youtube) ef þú vilt kynna þér þetta betur og svo myndir fyrir neðan.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=RKcsQX3yUB4[/youtube]