Skotfélag Húsavíkur festi nýlega kaup á vindrellum fyrir riffilsvæðið, og voru þær prófaðar í morgun.
Við Kristján mættum á riffilbrautina, í strekkingsvindi, og talsvert mikilli tíbrá.
Svona vindrellur eins og félagið keypti, gefa hugmynd um hvað vindurinn er stór faktor í riffilskotfimi, og eru nauðsynlegar þegar skotið er úr nákvæmum rifflum,m.a. í grúppu og skor keppnum.
Skotið var á 100 m. með Artic Eagle cal 6 PPC og Sako/krieger 6 B-R tight neck.
Sjónaukar: Nightforce 8-32 BR og Sightron 10-50x 60.
Báðir með 68 grs Berger kúlur.
Grúppurnar okkar voru ekki á heimsmælikvarða í þetta skiptið en auðvitað var ekkert að marka, þar sem við vorum að læra á rellurnar, vindurinn talsverður, og mikil tíbrá... sem sagt.. bara svindl, og ekkert að marka
Í leiðinni lögðum við drög að innanfélagsmóti, sem bera mun heitið, "Einn mávur yfir" og mun það vonandi verða haldið í kringum 20. júli.
Allir rifflar leyfilegir nema Bench rest rifflar.
Fyrirkomulag: Skotið samkv. hreindýraprófi á 100m. 200m. og 285 m.
5 Skot á hvert færi.
ATH. Innanfélagsmót.
Vindrellur.
- maggragg
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1284
- Skráður:02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
- Staðsetning:Hvolsvöllur
- Hafa samband:
Re: Vindrellur.
Glæsilegt og til hamingju með flottan búnað. Væri gaman að vita hvaðan þig pöntuðuð og á hvað mikið.
Verður gaman að heyra af þessari nýju keppni hjá ykkur svo
Verður gaman að heyra af þessari nýju keppni hjá ykkur svo
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Hvolsvelli
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
- Stebbi Sniper
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:492
- Skráður:09 Jun 2012 00:58
- Staðsetning:Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Vindrellur.
Flottir Húsvíkingar
Það verður gaman að sjá þetta mót þróast hjá ykkur, öll mót sem eru skotin svona á nokkrum færum án sighterskota eru til þess að menn pæla meira hvernig græjur og vindur virka.
Þetta verður væntanlega skotið á UST skífur?
Maður er strax orðinn spenntur að sjá hvernig þetta fer hjá ykkur...
Ég fór í Hafnir um daginn í góðu veðri að prófa Sierra ProHunter á bæði 300 og 400 metrum, skotið á UST æfingarskífur. Í stuttu máli var fall á báðum færum hjá mér. 4 af 5 á 300 metrum inná skífunni og 3 af 6 á 400 metrum. Öll voru þau samt à blaðinu en gekk misjafnlega að reikna vindinn.
Ég verð mjög sáttur þegar ég næ prófinu á 3, 4 og 500 metrum.

Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Vindrellur.
Hér er Arctic Eagle minn í 6mm PPC. Sprautaður af Ýrr Baldurs. Hann er ekki fullkláraður, verður kláraður í haust. Nánar síðar
- Viðhengi
-
- Arctic Eagle 002.JPG (184.07KiB)Skoðað 1292 sinnum
- Arctic Eagle 002.JPG (184.07KiB)Skoðað 1292 sinnum
Kveðja
Kristján R. Arnarson
Húsavík
Kristján R. Arnarson
Húsavík