Skaust - Hunter Class

Allt um Benchrest, Silhouette, ISSF og aðrar riffilgreinar ásamt öllu sem viðkemur skotfimi með rifflum
User avatar
jon_m
Póstar í umræðu: 1
Póstar:169
Skráður:16 Dec 2012 11:12
Staðsetning:Fossárdalur
Hafa samband:
Skaust - Hunter Class

Ólesinn póstur af jon_m » 08 Jun 2015 20:30

TVENNAN Hunter Class 14 júni 2015

Skotið á Hunter Class spjöld á 100 og 200 metra færum.
5 skotum á 5 blöð, samtals 25 skot á færi, samtals 50 skotum á báðum færum.
Auk þess má skjóta ótakmarkað á „sighter“ hring á hverri skífu, sem er í neðra horninu hægra megin merkt S.

Tímamörk eru 10 mínútur á fyrstu skífu og svo 7 mínútur á hinar fjórar.
Nota má tvífót og skorður (rest).
Engar takmarkanir á sjónaukastækkun.

Flokkar:
Óbreyttir veiðirifflar: Upprunalegur lás og hlaup. Mega vera beddaðir.
Breyttir veiðirifflar/custom veiðirifflar: T.d. Sako TRG eða Remington XB 40. Einnig ef búið er að skipta um hlaup á veiðiriffli

Mótið hefst kl. 10 að morgni og þátttökugjald 2.000 kr.

Skráning á vefnum og hjá poldinn@gmail.com og upplýsingar í síma 861 7040
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr

Svara