Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Allt um Benchrest, Silhouette, ISSF og aðrar riffilgreinar ásamt öllu sem viðkemur skotfimi með rifflum
User avatar
grimurl
Póstar í umræðu: 1
Póstar:70
Skráður:05 Oct 2014 18:12
Fullt nafn:Grímur Lúðvíksson
Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af grimurl » 11 Ágú 2015 20:28

Sælir félagar

Ég hef verið í erfiðleikum með að sjá greinilega hvar skot lenda á skotskífunni eftir ca 200 metra,hvað þá 300 eða 500 metra.
Rakst á þetta system sem leysir þetta vandamál fullkomlega.
Myndavél með Wi-Fi og langdrægu loftneti, dregur um 1mílu eða um 1600 metra. Þarft bara snjallsíma eða fartölvu með forritinu sem fylgir með pakkanum.
Þetta er frá Bullseye camera systems
https://www.bullseyecamera.com/

Ef keypt er frá þeim er kittið á 710 dollara með flutningskostnaði til Íslands en hægt að fá það t.d. á Amazon.com á um 595 dollara með flutningskostnaði.
http://www.amazon.com/Bullseye-Camera-S ... EK5BH8DRBW

Langar í svona.
Er einhver sem hefur notað þetta eða sambærileg tæki?
Með góðri kveðju,

Grímur Lúðvíksson
Selfossi

Beretta A303,Browning A5,
Marlin 22mag,Browning X-Bolt 243,Sauer 101 XT 6.5x55
Vortex Viper PST 6-24x50, Zeiss 5HD 5-25x50,Weaver 4-16x44,tasco 3-9x32

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 2
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 11 Ágú 2015 22:08

Já það er eitthvað af þessu til hér heima. Hef séð þetta úti í Höfnum og leist vel á
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

Árni
Póstar í umræðu: 1
Póstar:145
Skráður:23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn:Árni Ragnar

Re: Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af Árni » 11 Ágú 2015 23:58

Ódýrari og í raun betri lausn er að finna gamlan myndavélasíma (eða ódýran iphone með brotinn skjá) og stilla honum fyrir neðan battann.

Eina forritið sem þarf í hann er skype, starta videosamtal og þú hefur live-feed af skotskífunni.
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808

User avatar
TotiOla
Póstar í umræðu: 1
Póstar:406
Skráður:07 Mar 2012 21:21
Staðsetning:210 Garðabæ

Re: Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af TotiOla » 12 Ágú 2015 00:33

Árni skrifaði:Eina forritið sem þarf í hann er skype, starta videosamtal og þú hefur live-feed af skotskífunni.
Sniðug lausn 8-) En þetta hlýtur að vera háð góðu 3G/4G sambandi á svæðinu auk þess sem kostnaður við slíkt niðurhal er líklega fljótur að safnast upp ef menn eru lengi/oft að, ekki satt? :| Þá meina ég samanborið við "fría" WiFi sendingu með BullsEye. Spurning hve oft menn þyrftu að skjóta á ári til þess að BullsEye vélin borgaði sig upp?

Sem og, að lokum, hef ég heyrt slæmar sögur af því að vera með símagræjur og aðra skjái uppi á borði við skotæfingar. Þ.e. að snjallsímar og aðrir skjáir geti verið viðkvæmir fyrir því að vera of nálægt rifflunum og hafi gefið upp öndina, enda ekki hannaðir til þess að taka við þeim höggbylgjum sem þaðan koma (ólíkt BullsEye græjunum, gef ég mér). Tala nú ekki um ef menn eru með muzzle brake á þessum stærri long range caliberum.

Bottom line-ið. Ef ég ætlaði að fara að stunda long range af einhverju viti þá held ég að ég mundi splæsa í svona græju.
Mbk.
Þórarinn Ólason

Gísli Snæ
Póstar í umræðu: 2
Póstar:475
Skráður:12 Apr 2012 21:37

Re: Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af Gísli Snæ » 13 Ágú 2015 15:32

Annars hefur mér alltaf litist betur á þetta þó svo að það sé ekki með forritið sem BullsEye er með

http://www.targetcam.net/

Eða þá þessa sem ég held að séu nýjustu leikmennirnir á markaðinum

http://targetvisioncam.com/
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is

prizm
Póstar í umræðu: 1
Póstar:49
Skráður:15 May 2012 10:07

Re: Sniðug lausn fyrir lööööööngu færin-Bullseye camera

Ólesinn póstur af prizm » 15 Ágú 2015 21:28

Það voru t.d. 2 með svona á 300m motinu hjá KEF um daginn.

Þetta er algjör snilld og kostar bara svipað og fínasti spotter.
Verið úti eru frá 300-2000USD.
Drægni er mismunandi allt upp í rúmlega 2km.
Algjör snilld að vera með myndavél sem tengist í gegnum þráðlaust net við snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Þetta eru tilbúin til notkunar kerfi.
Það er alveg hægt að mixa svona kerfi sjálfur en kostnaðurinn er samt sem áður nokkuð mikill m.v. gæði.
Með kveðju
Ragnar Franz

Svara