Síða 2 af 2

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 26 Dec 2012 20:44
af Veiðimeistarinn
Fordómar eða ekki fordómar, það er spurningin :idea:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... ed_riffla/

Komentin og komentin við komentin eru um margt athygliverð :shock:

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 11:29
af Jónas
Skekkja? Ef íslendingar eru 320.000 og byssurnar 60.000 þá sýnist mér að byssurnar séu tæplega 19 á hverja 100 íbúa.


Jónas

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 13:20
af Veiðimeistarinn
Jónas, aðeins til áminningar!

vefurinn/fastar-undirskriftir-t385.html

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 15:17
af maggragg
Takk fyrir þetta Jónas. Þá vitum við að staðan er ekki svo slæm hjá okkur :)

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 15:25
af Jón Pálmason
Sælir/ar.

Erum við þá ekki í sæti 30 :) á meðal þjóða.

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 16:06
af Gisminn
Sæll Jónas minn og velkominn á vefinn gaman að fá þig hingað inn ,eð ómældan fróðleik af hinu og þessu :-)

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 17:18
af Jón Pálmason
Sælir/ar.

Tek heilshugar undir með Þorsteini.
Velkominn á spjallið Jónas.

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 27 Dec 2012 23:34
af Aflabrestur
Sælir.
Segi eins og fleiri velkominn á svæðið Jónas, ánægjulegt að sjá þig hér.

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 28 Dec 2012 08:09
af Fiskimann
Sælir félagar
Ég var að lesa greinina eftir borgarstjórann og verð að segja eins og er að ég er um margt sammála honum. Það hlýtur að mega gera e-r kröfur til þeirra sem fá byssuleyfi eins og t.d. að aðrir komist ekki í byssurnar. Við þekkjum dæmi á Íslandi að börn hafi valdið slysum með byssum. Ég held að fáir skilji t.d. afhverju þarf byssuskáp fyrir þrjár byssur en ekki tvær. Reynum að fá borgarstjórann í lið með okkur. Það væri kannski ráð að bjóða honum í Skotfélag Reykjavíkur ef hann er ekki þegar í því.
Kv. Guðmundur Friðriksson

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 28 Dec 2012 12:47
af Jónas
Fiskimann skrifaði:Sælir félagar
Ég var að lesa greinina eftir borgarstjórann og verð að segja eins og er að ég er um margt sammála honum. Það hlýtur að mega gera e-r kröfur til þeirra sem fá byssuleyfi eins og t.d. að aðrir komist ekki í byssurnar. Við þekkjum dæmi á Íslandi að börn hafi valdið slysum með byssum. Ég held að fáir skilji t.d. afhverju þarf byssuskáp fyrir þrjár byssur en ekki tvær. Reynum að fá borgarstjórann í lið með okkur. Það væri kannski ráð að bjóða honum í Skotfélag Reykjavíkur ef hann er ekki þegar í því.
Kv. Guðmundur Friðriksson
Það eru gerðar kröfur til þeirra sem eiga 1-3 byssur sbr. 33gr. reglugerðar nr. 787/1998:

33. gr.

Meðferð og vörslur.

Eigendur eða umráðahafar skotvopna og skotfæra skulu ábyrgjast vörslur þeirra og sjá svo um, að óviðkomandi nái ekki til þeirra. Í því skyni skal húsnæði sem geymir skotvopn og skotfæri ávallt læst ef íbúar eru fjarverandi. Við lengri fjarveru skal auk þess sem að framan greinir gera skotvopn óvirkt t.d. með því að fjarlægja af því nauðsynlega hluta aðra en láshús.

Þegar skotvopn og skotfæri eru ekki í notkun skulu skotvopn og skotfæri geymd í aðskildum, læstum hirslum.

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 28 Dec 2012 13:16
af Fiskimann
Sælir félagar
Jónas vísar í lög um meðferð og geymslu á byssum. Þörf ábending þar. Ef allir færu eftir þeim þá ættum við að vera í góðum málum. Ég geri samt ráð fyrir að reglan um byssuskápana hafi verið sett til að auðvelda eigendum að passa upp byssurnar og að erfiðara væri fyrir óviðkomandi að komast í þær.
Kv. Guðmundur Friðriksson

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 28 Dec 2012 16:42
af gkristjansson
Bara svona að gamni:

Hér í Ungverjalandi er skylda að geyma allar byssur, sama hver fjöldinn er, í læstum (viðurkenndum) skáp og skotfæri í aðskildri læstri hirslu. Síðan kemur lögreglan einu sinni á ári í heimsókn til að taka út og samþykkja geymsluna.

Re: Smá grein um fordóma gagnvart skotíþróttum

Posted: 28 Dec 2012 17:22
af Veiðimeistarinn
Sæll Jónas.
Velkominn á spjallið.