Nýir skilmálar:
Reglur um notkun | Reglur um upplýsingagjöf
Eftir að hafa farið yfir málið frá öllum hliðum, tekið mið af vilja notenda vefsins, ásamt því að stjórn Skotfélagsins er samhuga í þessu máli. Er það mat þeirra sem komu að þessu að verið sé að taka mun meiri hagsmuni fram yfir minni, varðandi þessa ákvörðun. Öllum verður áfram heimilt að lesa sér til fróðleiks og margir vettvangar eru á internetinu til þess að spyrja upplýsinga án þess að gefa upp nafn fyrir þá sem það kjósa.
Nokkrir punktar sem tekið var mið af:
- Á Íslandi ríkir málfrelsi. Það frelsi að fá að tjá sig fylgir þó ábyrgð og er nafnleysi ekki hluti af málfrelsinu þar sem að ábyrgðin er takmörkuð. Til að tryggja málfrelsi notenda á vefnum verða nafnlaus skrif ekki leyfð.
- Stjórnarskrá Íslands: 73. gr. Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. - Ef ekki væri skylda um nafnleysi þarf að ritskoða vefinn sem er ekki í anda málfrelsisins. Þar að auki útheimtir það meiri vinnu af umsjónarmanni og yfirlegu en þessum vef er stjórnað í frítíma og launalaust.
- Umræður á vefnum eiga að vera eins og umræður auglitis til auglitis. Það er réttur allra að vita við hverja þeir tala í almennum umræðum. Menn eiga að sitja við sama borð. Nafnleysi tryggir það ekki.
- Reynslan hefur sýnt á afgerandi hátt að allar umræður eru vandaðri og málefnalegri þegar menn ræða við hvorn annan undir nafni, enda á jafningja grundvelli.
- Ef menn geta ekki sagt eitthvað við annan notanda, eða um eitthvað í eigin persónu, á ekki að segja það á spjallinu.
- Einhverjir kjósa að koma ekki fram undir nafni á einhverjum forsendum sem geta verið eðlilegar. Þeim er frjáls að lesa vefinn áfram eins og aðrir og eru til aðrir vettvangar á íslensku til að senda inn fyrirspurnir nafnlaust. Hér á þessum vef gilda þessar reglur og öllum frjálst að tjá sig meðan þeir samþykkja þær reglur.
Mbk.