Sælir netverjar allir.
Nú er svo málum háttað að mig vantar hringi, ekki á fingur heldur sjónaukahölduhringi flott orð . En það munu vera 30mm hringir, sérlega vel vaxnir bæði upp og niður ( super high ), matt svarta helst, fyrir STD basa frá Leupold. Eða eins og framleiðandinn myndi orða það - Leupold STD rifle scope ring, 30mm, Super High, Matte Black og framleiðslunúmerið myndi vera 51033
Vonandi á einhver þetta hér á skerinu, þeir voru ekki til hjá Veiðihorninu né Vesturröst.
Kveðja Keli
Leupold hringir
- Aflabrestur
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:490
- Skráður:25 Feb 2012 08:01
- Staðsetning:Sauðárkrókur
Re: Leupold hringir
Sælir.
Ef svo vill til að þú sleppir með "high" 49959 þá á ég svoleiðis fyrir mjög lítið.
Ef svo vill til að þú sleppir með "high" 49959 þá á ég svoleiðis fyrir mjög lítið.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Re: Leupold hringir
Sæll Jón, takk fyrir þetta. En þar sem framlinsan á sjónaukanum er 56, þá þarf ég super high samkvæmt ráðleggingum framleiðanda. Ég er búinn að panta svona hringi frá alríkjasambandinu í westri og nú er bara að sitja með hendur í skauti og bíða
Kveðja Keli
Kveðja Keli