Frænda minn, skagfirskan, vantar riffil. 222-223-243 eða svo. Með opnum sigtum. Þarf ekki sjónauka þótt í lagi sé að svoleiðis megi setja á gripinn. Milliþungt eða þungt hlaup; létt hlaup kemur ekki til greina.
8916968
Ó e riffli
Þorvaldur frá Hróarsdal
Re: Ó e riffli
Ég stórefast um að þú finnir nokkurn timann riffil með þungu hlaupi sem er með opnum sigtum !
Kv. Ingvar Kristjánsson
Re: Ó e riffli
Jæja, frændi. Þá það, en öngvu að síður ekki með allra grennstu gerð. Ég mældi um daginn hlaup á mauser riffli sem var tæpir 16 mm. Það var of grannt fyrir vorn sameiginlegan frænda. Kannski 20 mm væru betri?
Þorvaldur frá Hróarsdal
Re: Ó e riffli
Þarna er Valdur lifandi kominn.
Var oft búinn að lesa pistla hans og svör á Hlaðvefnum "sáluga" og hafði alltaf gaman af. Og þar sem mér fannst hann alltaf vera vel pennafær, þá giskaði ég alltaf á, að hann væri á/frá Norðurlandi
En skemmst er frá að segja, að reyndar hef ég séð riffil af gerðinni Sako með opnum sigtum, sem var með umræddum hlaupasverleika, þ.e. 20 mm. Sá riffill mun ekki vera til sölu.
Mikið væri nú gaman ef Hræfinnur myndi nú birtast hérna líka, svona rétt eins og skrattinn frá Sauðalæk.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
- Aflabrestur
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:490
- Skráður:25 Feb 2012 08:01
- Staðsetning:Sauðárkrókur
Re: Ó e riffli
Sælir.
Hafið þið frændurnir spáð í Otterup Mauser rifflana sem Hlað var með? Gatasigti, þungt hlaup en að vísu bara til 6,5x55 en var hægt að finna ágæt eintök inn á milli.
Hafið þið frændurnir spáð í Otterup Mauser rifflana sem Hlað var með? Gatasigti, þungt hlaup en að vísu bara til 6,5x55 en var hægt að finna ágæt eintök inn á milli.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson