Síða 1 af 1

Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 10 May 2015 18:31
af grimurl
Sælir
Er ekki einhver sem lumar á góðum sjónaukafestingum fyrir 30 mm túbu?
Það eru original Weaver/piccatinny basar á rifflinum (Browning x-bolt) svo mig vantar bara hringina.

Einnig vantar mig góða dæja fyrir 243 og 6,5x55 ef einhver er til í að selja mér.

Einungis gott stöff kemur til greina, ekkert kínadrasl.

Grímur
S. 847-1926

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 11 May 2015 13:18
af petrolhead
Sæll Grímur.
Ég á 3 die set frá Lyman fyrir 6.5x55 sem ég gæti sem best látið frá mér, ef þú hefur áhuga sendu mér þá póst á netfangið <gardartr@gmail.com>

MBK
Gæi

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 12 May 2015 21:48
af Sveinn
Sæll Grímur,

er með ónotaða tactical hringi f. 30 mm túbu, sex torx skrúfur á hvorum hring, flugvélaál, passar á Picatinny rail/basa. Af gerðinni Blackhawk, Made in USA. Hringirnir eru 30 mm á hæð, mælt frá efri brún basa að miðju hrings (samskeyti). Eru enn í pakkanum, hafa aldrei verið notaðir, keyptir í fyrra. Verð 7000 kr. Hafðu samband í s 698 9644 eða sveinn@primordia.is ef þú hefur áhuga.
blackhawk 1.jpg
blackhawk 1.jpg (124.49KiB)Skoðað 1416 sinnum
blackhawk 1.jpg
blackhawk 1.jpg (124.49KiB)Skoðað 1416 sinnum
blackhawk 2.jpg
blackhawk 2.jpg (121.86KiB)Skoðað 1416 sinnum
blackhawk 2.jpg
blackhawk 2.jpg (121.86KiB)Skoðað 1416 sinnum
blackhawk 4.jpg

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 13 May 2015 00:24
af grimurl
Því miður, Blackhawk og sambærilegt er ekki minn tebolli. Þarf alvöru festingar.

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 15 May 2015 20:33
af Árni
Ég gæti verið með það sem þú ert að leita að.

Er með Badger Ordnance MAX50 hringi í High (1,125")
http://www.midwayusa.com/product/173432 ... uctFinding

Eru tommu breiðir og 450g, framleiddir fyrir 50BMG, númeraðir í matched pörum.
Einnig fylgja með tommu inserts ef þú vilt nota þá fyrir tommu sjónauka einhvertíman.

Verður líklega ekki öflugra.

Kosta 24þ úti +5þús fyrir inserts.

Getur fengið þá á 25.

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 16 May 2015 17:48
af grimurl
Nú erum við að tala saman!
En þar sem ég er nú ekki með 50 cal. bara "venjulegt" 6,5 mm þá finnst mér þetta þungir hringir.
Engin spurning að þetta eru topphringir og hverrar krónu virði en ég var nú bara að spá í flotta hringi á veiðibyssu sem er ekkert vesen með.

Re: Vantar sjónaukafestingar fyrir 30mm túbu og dæja

Posted: 18 May 2015 21:31
af grimurl
Málunum er reddað,dæjar komnir eða ósóttir og hringirnir komnir.
Takk fyrir.