Síða 1 af 1

Vandræði með fuglaskera

Posted: 06 Sep 2013 20:25
af Gisminn
sælir er einhver að nota svona og getur leiðbeint mér ég er búinn að vera að prófa að horfa á youtup og alles en ég er að gera eitthvað vitlaust ég þarf svo mikið átak og er stundum að skemma með því.

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 06 Sep 2013 21:24
af iceboy
Þetta er kannski heimskuleg spurning hjá mér en ertu búinn að brýna hann vel?

Það þarf svoltið afl en mun minna ef hann hefur verið brýndur

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 06 Sep 2013 22:22
af Gisminn
Takk hann er nýr úr kassanum og það eru ekki til heimskulegar spurningar en ég verð að viðurkenna að mig var farið að gruna bitið. Það eru nokkrar sagtennur ofarlega í skeranum á járnið þar fyrir neðan að vera beitt ? og þegar maður togar á járnið sem gengur inn að koma út um rassgatið og togar maður ekki bara eins beint og maður getur.

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 06 Sep 2013 22:44
af iceboy
ég á eina svona græju en hef ekki notað hana, EN það sagði mér sá sem bjó þetta til að ég þyrfti að brýna þetta, búa til egg áður en ég byrja að nota þetta.

Bara fara með slípirokkinn og brýna með honum, það var mér sagt allavega

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 06 Sep 2013 23:11
af Gisminn
Ég keypti þennan í Hlað og bara taldi dótið tilbúið skoða þetta á morgun

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 08 Sep 2013 21:09
af Gisminn
Heyrðu Árnmar ég held þú hafir hitt naglann á höfuðið það er ekker bit nema á 6 tönnum mjög ofarlega.Brýndiru báðum megin á eggini eða bara öðru megin eins og virðist hafa verið byrjað á en ekki klárað.

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 08 Sep 2013 21:42
af Sveinbjörn V
Nú hef ég hef ekki prufað svona græju, en get varla ímyndað mér að lifrin sleppi við skemmdir.
Hvað segja menn um það ? Sleppur lifrin frá þessum skerum ?

Ps. takk fyrir að benda okkur á þessi verðmæti sem lifrin er Þorsteinn.
Á núna 6-7kg. af gæsalifur til að japla á ef veturinn verður harður. ;)
Sorglegt að hafa hent öðru eins um daginn :(
Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað lifrin er stór fyrr en ég var með hana heila í höndunum..

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 08 Sep 2013 22:47
af Gisminn
Í þessi fáu skipti sem ég hef náð bringuni án svaka áreinslu eða vera að rikkja og svoleiðis var lifrin og hjartað heilt en um leið og maður varð að rikkja og slíkt þá var hún í 2-3 pörtum.
En mér finnst lifrin vond og sýð hana handa hundinum ásamt öðrum afskurði í snyrtingu.
Lærin elda ég annaðhvort heil eða úrbeina og hakka og nota í gæsaborgara.

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 08 Sep 2013 23:01
af Sveinbjörn V
Læri af ungfugli eru ágætis matur. Allt þetta eldra fer í hakk ;)

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 09 Sep 2013 08:25
af emilbb51@gmail.com
Sæll vertu
Fuglaskerinn minn fór að virka þegar ég var búinn að brýna hann vel, en einnig skar ég á sinar sem liggja frá væng inn að bringuvöðva því sinarnar vildu rífa vöðvann. Þá gekk þetta ágætlega.
Kveðja,
Emil Björnsson
frá Birkihlíð

Re: Vandræði með fuglaskera

Posted: 09 Sep 2013 17:03
af Gisminn
Takk Emil