Stóra bókin um Villibráð
Nú er Stóra bókin um Villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumann komin út hjá bókaútgáfunni Sölku. Úlfar Finnbjörnsson er ástríðufullur veiðimaður sem hefur brennandi áhuga á að nýta bráðina sem best. Hér er að finna:
Sannkallað alfræðirit
Ómótstæðilegar sælkerauppskriftir
Aðgengilegar leiðbeiningar um verkun og meðferð villibráðar
Gullfallegar ljósmyndir
Úlfar hefur stundum verið nefndur villti kokkurinn, enda fer hann víða og stundar fjölbreytta veiðimennsku auk þess að vera matreiðslumeistari á heimsmælikvarða. Hann er þó sannkölluð fyrirmynd annarra veiðimanna og umgengst náttúruna af sannri virðingu.
Hér töfrar Úlfar fram ljúffenga veislurétti úr kjöti og innmat hreindýra, sjávarspendýra og fleiri fuglategunda sem veiða má á Íslandi. Hann fjallar um hvaðeina sem viðkemur frágangi á bráðinni allt frá því hún er felld; hvernig á að reyta, svíða, hamfletta, úrbeina, búa til kæfur, pylsur, súpur, soð og sósur auk þess að steikja og grilla bestu bitana.
Glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson prýða bókina, bæði af réttunum ásamt skýringarmyndum af helstu verkunaraðferðum. Teikningar eru eftir Jón Baldur Hlíðberg. Dominique Plédel Jónsson skrifar kafla um vín með villibráð.
Bókin er 312. bls. og prentuð í Póllandi í umsjón Prentmiðlunar ehf."Allir veiðimenn þekkja töfra veiðanna, Þegar maður og náttúra verða eitt og allir veiðimenn vita að bráðin er einhver sá besti og hollasti matur sem völ er á. Spurningin er hins vegar sú hvernig best sé að nýta bráðina og matreiða. Ef einhver getur svarað þeirri spurningu svo vel sé er það matreiðslumaðurinn og veiðimaðurinn Úlfar Finnbjörnsson."
Sigmar B. Hauksson Formaður Skotveiðifélags Íslands