Síða 1 af 1

Leirdúfuvöllur opinn félagsmönnum

Posted: 28 Jul 2013 22:59
af maggragg
Félagsmenn ath. Leirdúfuvöllurinn verður opinn félagsmönnum næstkomandi þriðjudag frá 17 -21. Stefnt er að því að völlurinn verði svo opinn á þriðjudags og fimmtudagskvöldum. Enn sem komið er er völlurinn ekki opin öðrum en það styttist í formlega opnun. Hringurinn kostar 500 kr. og aðeins er leyfilegt að nota stálskot eða önnur blýslaus skot, mest 28 gr.

Re: Leirdúfuvöllur opinn félagsmönnum

Posted: 12 Ágú 2013 23:03
af maggragg
Vorum að gera við leirdúfukastara í markinu, en hann er búin að vera að stríða okkur og brjóta of margar dúfur, eftir að hafa skoðað allt hátt og lágt og rifið í sundur höfum við loksins fundið vandan og gert við hann. Því verður opið aftur á morgun fyrir félagsmenn frá kl. 17 - 21 og svo öll þriðju og fimmtudagskvöld í haust. Núna er um að gera að taka fram haglabyssuna og byrja að æfa, hvort sem er fyrir veiðina í haust eða koma sér í keppnisform.

Re: Leirdúfuvöllur opinn félagsmönnum

Posted: 22 Ágú 2013 10:33
af maggragg
Leirdúfuvöllurinn verður opinn félagsmönnum í kvöld fá kl. 17 - 21. Um að gera að taka nokkra hringi í upphafi veiðtímabilsins.