Síða 1 af 4
Helvítis 308
Posted: 24 Jan 2014 23:45
af skepnan
Sæl öll
Ég get ekki annað en verið sammála Sigurði, vini mínum, Veiðimeistara um ógagnsemi 308.
Svo vildi til sem endra nær að ég fór til gegninga og stökk þá gimbur nokkur með því ólánsnúmeri yfir þilið og inn í hlöðu, hvar hún æddi í gómsæta hánna!
Brást ég óðara við og reyndi með öllum mætti að koma henni til síns heima, reyndi að grípa hana en skipti þá engum togum að hún stangaði mig beint í andlitið. Fékk hún flugferð góða hvers hennar heimur er.
Ólukkans kvikindið er nefnilega númer 308, sem Veiðimeistarinn hefur margsinnis bent á að er ólukkans apparat. Og hebbði ég betur hlýtt mér vitrari mönnum en að setja þetta ófétis númer á. Sjá mynd.
- Hér má sjá far eftir 308
Kveðja Keli
Re: Helvítis 308
Posted: 24 Jan 2014 23:47
af gylfisig
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAAHHAAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHHAHAHHAHAHAHAHAHHAHAHAHHAHAHAHAHHAHAH
Hvar var zeroið hjá f.... rollunni
Re: Helvítis 308
Posted: 24 Jan 2014 23:51
af sindrisig
Örugglega 0 á 0 !
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 00:17
af skepnan
Það er ljóst að 308 er ekkert augnayndi og það á sjálfan
bóndadaginn
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 00:44
af Veiðimeistarinn
Já ég vissi það alltaf.....og nú þarf ekki vitnanna við
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 08:40
af karlguðna
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 10:30
af Árni More Arason
Hehehehe, þig hefur líklega langað að kynna hana fyrir einhverju öðru kalíberi í smástund.
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 10:53
af iceboy
Já það hefur elt þig óheppin með þessa
Þar sem þetta er gimdur frá síðast vori þá hefðiru verið betur settur hefði hún bara verið nr 6
Þá hefðiru verið með 3006 og það er allt annað og betra mál
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 13:04
af skepnan
Ekki er útlitið betra daginn eftir og bakslagið af 308 greinilega vanmetið
Lít út eins og hálf panda, þar af leiðandi í hálfgerðri útrýmingarhættu
Kveðja Keli
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 13:30
af ísmaðurinn
hahahaha Keli þú hefur ekki talist fallegur en núna ertu skelfilegur hahahaha sorry sorry verð að senda þetta á bróðursælann hehehehe
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 13:32
af Morri
Heheh.... er nokkuð nema að senda henni .308 í hausinn eftir þessa meðferð
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 13:40
af karlguðna
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 13:42
af Stebbi Sniper
Ha ha ha h! no hard feelings Keli, en ég fæ ekki betur séð en að fallið hafi verið í það minnsta 1,5 metrar....... á skotmarkinu og miðað við þetta þá er slagkrafturinn vel yfir 100 kíló...
[youtube]
http://www.youtube.com/watch?v=zlDBUL5digw[/youtube]
Lömbin undan henni geta náttúrulega ekki fengið önnur númer en 308 Norma Magnum, 308 Marlin Express og 308 Barnes... svo gætu að sjálfsögðu komið improved útgáfur síðar.... AI, Ultra Magnum, Short Magnum... þá skaltu fara að vara þig!!!!
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 15:20
af Bóndi
Þessi gimbur ætti að fá nafnið Vaðbrekka
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 18:23
af skepnan
Hér skrifar konan hans Kela, myndasmiður og fjárbóndi. Þessari snilldartillögu um nafngift hefur þegar verið komið til framkvæmda.
- Vaðbrekka 13-308
- Vaðbrekka.JPG (11.67KiB)Skoðað 8399 sinnum
- Vaðbrekka 13-308
- Vaðbrekka.JPG (11.67KiB)Skoðað 8399 sinnum
Kv. Anna Runólfsdóttir
Fljótsdal
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 18:41
af gylfisig
LÆK !
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 18:44
af iceboy
Ja nú hafa bændur farið illa að ráði sínu
Verð þessi skepna eitthvað lík þeim sem nún er nefnd eftir þá verður hún bæði háfætt og með litla vöðvafyllingu ( lága fituprósentu reyndar ) þannig að það er spurning hvort hún standi undir fóðurkostnaði
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 18:57
af Jón Pálmason
Sælir/ar.
Skemmtilegur og öðruvísi þráður.
Mætti vera meira af svona löguðu.
Re: Helvítis 308
Posted: 25 Jan 2014 19:09
af 257wby
Varðandi afkvæmi gimbrarinnar þá sér hver maður að leita verður í afsprengi 308win
þ.e. 243win,358win,7mm-08 og 260rem (valið eftir stærð afkvæmis)
kv.
Guðmann
Re: Helvítis 308
Posted: 26 Jan 2014 01:05
af Morri
Þessi þráður er nú með þeim skemmtilegri sem komið hafa inn.... hehe svo í anda spjallsins.
Ég skellihlóð þegar ég las þetta heheh.... fyrirsögnin sagði manni " á að fara í þetta einu sinni enn" en svo kom annað á daginn heheheheh