Síða 1 af 1

500 notendur!

Posted: 05 Nov 2014 21:20
af maggragg
Jæja

Í dag skráði fimmhundraðasti notandi sig inn á spjallið. Til hamingju Bryndís Blöndal með þann titil :)

Re: 500 notendur!

Posted: 05 Nov 2014 21:42
af Jón Pálmason
Sæll Magnús.

Til hamingju með þennan áfanga.
Veiðimeistarinn á reyndar part í þessu þar sem hann er vakinn og sofinn varðandi það að karlar og konur skrifi undir nafni. Það tryggir einfaldlega miklu málefnalegri skrif.

Re: 500 notendur!

Posted: 05 Nov 2014 22:08
af petrolhead
Óska ykkur Skyttum til hamingju með árangurinn, ykkur hefur tekist vel upp með þetta....með dyggri aðstoð Veiðimeistara eins og Jón bendir á.

Segðu mér Magnús, eruð þið að reka server undir þetta sjálfir eða fáið svæði hjá öðrum ?? það sem ég er í grunninn að fiska eftir er hvort það sé ekki dálítill kostnaður í að halda þessu úti fyrir ykkur Skyttumenn?

MBK
Gæi

Re: 500 notendur!

Posted: 05 Nov 2014 22:26
af maggragg
Takk fyrir það

Við kaupum hýsingu undir þetta, en auglýsingarnar bjarga þessu :) Ég var búin að hugsa mér að hýsa þetta sjálfur, hef vélbúnaðinn í það, en bíð með það þó um stund. Þyrfti að gera hann aðeins áreiðanlegri fyrst :)

Re: 500 notendur!

Posted: 08 Nov 2014 10:45
af Veiðimeistarinn
Til hamingju með þetta Magnús.
Velkominn á spjallið Bryndís!
Takk fyrir hlý orð í minn garð :D

Re: 500 notendur!

Posted: 08 Nov 2014 23:54
af grimurl
Ég óska vinkonu minni og fyrrum nemanda Bryndísi Blöndal til hamingju með titilinn!

Grímur