Hundarnir

Allt sem viðkemur veiðihundum
iceboy
Póstar í umræðu: 5
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:
Hundarnir

Ólesinn póstur af iceboy » 28 Apr 2012 16:21

Það vantar alveg þráð í þennan flokk svo ég skelli inn einni mynd.
Ég á ekki þessa gulu bara hina 3 ;)
Viðhengi
hundarnir 002 minni.jpg
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 28 Apr 2012 16:28

Þetta er mín hún heitir Minniborgar Snotra og stefnir á sitt 3 veiðipróf á Melgerðismelum
Viðhengi
snotr og fituklumpurinn 003.JPG
snotr og fituklumpurinn 003.JPG (62.06KiB)Skoðað 5923 sinnum
snotr og fituklumpurinn 003.JPG
snotr og fituklumpurinn 003.JPG (62.06KiB)Skoðað 5923 sinnum
Síðast breytt af Gisminn þann 28 Apr 2012 16:33, breytt 2 sinnum samtals.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

iceboy
Póstar í umræðu: 5
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af iceboy » 28 Apr 2012 16:30

Hún er flott. Labbarnir eru snilldar hundar:-)
Árnmar J Guðmundsson

iceboy
Póstar í umræðu: 5
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af iceboy » 28 Apr 2012 16:32

Mínir eru semsagt Sóltúns Artemis Rós. Leiru Zorró og Twix sem er blanda af Irish setter og Scheffer.
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 28 Apr 2012 16:40

Já þetta er minn fyrsti labbi og bara hreinlega skil ekkert í því að ég hafi ekki verið kominn með labba fyrr.
Fyrir utan hvað hún er dugleg og góður félagsskapur þá gjörbreytti hún veiðimöguleikunum mínum.
Get skotið við ár eða vötn sem ég veigraði mér við áður og í kvöldflugi þegar atgangurinn er búinn hef ég prófað að senda hana í opna leit og hún hefur skilað inn fugli sem ég vissi ekki um og í rjúpu þá sýnir hun mér um leið þegar hún hefur fundið fugla og núna í haust í einum túrnum hreinlega vorkendi ég rjúpuni þar sem við vorum í móum og snjór yfir öllu en hún fann þær úti um allt en ef ég hefði verið einn hefði ég verið heppinn að fæla upp tvær
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

iceboy
Póstar í umræðu: 5
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af iceboy » 28 Apr 2012 16:45

já það er ekki langt síðan ég fór að nota hund en þetta hefur breytt mínum veiðum. Algjör snilld:-) Hef lítið notað tíkina í veiði en hlakka til að nota hana í haust, það er svakalegur vinnuvilji í henni og vinnugleði
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 29 Apr 2012 12:41

Talandi um fyrsta hund ég fór með mína í fyrsta skipti á veiðipróf í fyrra og var algjör klaufi og vissi ekki neitt enda fékk ég ekki einkunn þá. En þetta var svakalega góð reynsla og ég mun aldrey sjá eftir því og retriever deildin hjá Hrfí er bara snild. Það voru allir boðnir og búnir að gefa mér ráð og aðstoða enda skilaði það 1 einkunn á næsta prófi og mér finnst vera góðleg samkeppni milli ræktenda en ekki nein leiðindi og ég get pottþétt mælt með að menn ættu að skrá sig í þessa deild og allavega fara í eitt próf til að kynnast fólkinu og læra og að sjálfsögðu líka til að meta stöðu hundsinns ;)
Og ef einhver ykkar er aflögufær um svartfugl í ham er ég viss um að það yrði vel þegið ég skaffaði þeim nokkra sem þakklætisvott fyrir góðar móttökur á nýliða. :P
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

iceboy
Póstar í umræðu: 5
Póstar:466
Skráður:26 Apr 2012 15:58
Hafa samband:

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af iceboy » 29 Apr 2012 12:59

Já ég er í deildinni og þekki nokkra þar. Stefnan er að fara með báða labbana í veiðipróf í sumar. Ég horfði á fyrsta veiðipróf ársins um daginn og það er bara gaman að þessu:-)
Árnmar J Guðmundsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 09 May 2012 23:58

Sælir ég var að koma inn úr því að skjóta seli við einn ós hér í nágernninu og verð bara að lýsa aðdáun minni á tíkinni minni ég skaut 5 seli á um hálftíma og var færið 70-100 metrar úti í sjó og ég sendi tíkina að sækja þá og er það skemst frá að segja að hún náði 3 af 5 tveir sukku áður en hún komst til þeirra.
Tveir af þessum 3 voru helmingi stærri en hún og sennilega 4 sinnum þyngri ég gat alla vega ekki loftað þeim þó ég tæki slökkviliðs takið. sem sagt bakkaði undir þá og hreifa á sitthvora öxlina og reynt að standa upp þannig og það munaði litlu en nóu samt.
En hún gat komið þeim að landi þessa vegalengd og hefi farið út aftur ef ég hefði skotið fleiri en þetta var komið gott.
Varð bara að deila þessari aðdáun á tíkini.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 10 May 2012 07:35

Þorsteinn, tókstu ekki myndir?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 10 May 2012 09:50

Bara á símann minn því það er eitt sem ég virðist alltaf skilja eftir heima og óska svo að hafa með og það er myndavél
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
gkristjansson
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:250
Skráður:02 May 2012 14:21
Staðsetning:Ungverjaland

Veiðihundarnir mínir

Ólesinn póstur af gkristjansson » 10 May 2012 09:55

Bara svona að gamni, hér er mynd af veiðihundunum mínum ;)
HundarninMinir.jpg
HundarninMinir.jpg (35.8KiB)Skoðað 5842 sinnum
HundarninMinir.jpg
HundarninMinir.jpg (35.8KiB)Skoðað 5842 sinnum
Í fyllstu hreinskilni þá verð ég að segja að þeir fara ekki með mér á veiðar en ég kalla þá "veiðihunda" af eftirfarandi ástæðu:

Í veiðihúsinu mínu halda við um 5 kettir, hálf villtir. Þegar ég er á staðnum þá fóðra ég kettina (þeir halda músastofninum í skefjum) og þegar að ég er ekki á staðnum þá sér vinafólk okkar í þorpinu um að fóðra þá.

Einhverra hluta vegna þá er hundunum meinilla við þessa ketti og þeirra (hundanna það er að segja) mesta skemmtun er að reyna að "veiða" þessa ketti. Það er ótrúlegt að sjá þá fara á eftir ketti, einn rekur og hinir tveir fara upp með sinnhvorri hliðinni og reyna að komast fram fyrir köttinn, ég myndi segja að hlutfall felldra dýra við "veiðar" sé um 10%.....

Ég veit að þetta er ekki beint mannúðlegt en ef þetta væri ekki þá væri ég sennilega núna kominn með um 20 ketti þannig að ég lít á þetta sem "viðhald á stofnstærð kattanna".
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 10 May 2012 10:01

Flottir hundar hjá þér og Sigurður ég ætla að senda þér 3 myndir úr símanum mínum til að gefa þér hugmynd um hvernig kúlan fer með kobba og stærð á miðju dýrinu og svo tíkini að koma inn þá selurinn sáist líklega ekki í öldurótinu.
Þú kannt kannski að setja svona símamyndir inn ;)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
Hrafnjo
Póstar í umræðu: 2
Póstar:55
Skráður:03 Jan 2011 17:33

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Hrafnjo » 10 May 2012 14:44

Gisminn, þú mátt endilega setja inn myndir af selunum, algjör snilld að vera með video/myndavél þegar er verið að brasa.

En veiðar með hundi eru frábærar. Á sjálfur Enskan Setter og fæ labbann minn núna í júní. Við sjáumst þá kannski á Melgerðismelum, stefni á að glápa á það próf.
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 10 May 2012 15:52

Það koma vonandi myndir af einum komnum á land og einum með afleiðingar af 120grn nosler og einni mynd af tíkini vera að koma með einn inn í öldurótinu en ég er ekki viss um að þær séu góðar teknar á síma í miðjum hasar en Magnús ætlar að reyna að koma þeim inn. Þær ættu allavega að gefa hugmynd :twisted: Og já það verður bara gaman að hafa sem flesta á melunum ;)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
maggragg
Skytta
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1284
Skráður:02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn:Magnús Ragnarsson
Staðsetning:Hvolsvöllur
Hafa samband:

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af maggragg » 10 May 2012 16:28

Hérna koma myndirnar sem beðið hefur verið eftir :)
Viðhengi
Selur1.JPG
Selur1
Selur2.JPG
Selur2
Selur3.JPG
Selur3
Magnús Ragnarsson
Hvolsvelli
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 9
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Gisminn » 10 May 2012 18:28

Snillingur takk fyrir
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
Aflabrestur
Póstar í umræðu: 1
Póstar:490
Skráður:25 Feb 2012 08:01
Staðsetning:Sauðárkrókur

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Aflabrestur » 11 May 2012 01:02

Sæll Steini.
Hirtir þú ekki eitthvað af kjöti úr þessu?
Sé alveg fyrir mér selsfile með lauksósu, brúnuðum grænum og rauðkáli. tala nú ekki um saltað spik(slef)
Ég verð að fara að koma í heimsókn þarna yfir fjallið.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson

User avatar
Veiðimeistarinn
Póstar í umræðu: 2
Póstar:1917
Skráður:17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Veiðimeistarinn » 11 May 2012 07:38

Já þetta eru góðar myndir, sýna atganginn í blóðlitum sjónum sjónum, skallaðan sel ég hef séð nokkur hreindýr svona eftir náðaskot frá mér, síðan stærðarmunurinná hundinum og selnum, frábært.
Ég á svona mynd af hreindýrshaus en þún er ekki fyrir viðkvæma, kannski ekki rétt að birta hana hér ómögulegt að vita hverjir villast hér inn á spjallið!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is

User avatar
Hrafnjo
Póstar í umræðu: 2
Póstar:55
Skráður:03 Jan 2011 17:33

Re: Hundarnir

Ólesinn póstur af Hrafnjo » 11 May 2012 08:32

Flottar myndir, rétt sem Siggi segir, engin smá stærðarmunur á selnum og tíkinni. Helvíti flott hjá henni. Takk fyrir að deila þessu.
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson

Svara